Sunnusmári 20, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 41 dag á skrá

Verð 78,2
Stærð 85
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 920
Skráð 1.3.2024
Fjarlægt 12.4.2024
Byggingarár 2019
mbl.is

LIND fasteignasala kynnir einstaklega fallega þriggja herbergja útsýnisíbúð á 6. og efstu hæð í nýlegu húsi við Sunnusmára 20 í Kópavogi. Tvennar svalir, glæsilegt útsýni og stæði í bílageymslu.

Eignin er laus við kaupsamning.
 
Íbúðin er skráð 85 fm skv. Þjóðskrá, þar af 5,7 fm geymsla. Aukin lofthæð, bjartir og stórir gluggar í alrými og herbergjum. Tvennar svalir með útsýni til allra átta, en búið er að samþykkja og teikna svalalokanir. Einungis tvær íbúðir eru á hæðinni.
Eignin er vel staðsett þar sem örstutt er í Smáralindina, leik- og grunnskóla og aðra þjónustu. 

Eignin skiptist í:
Forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og samliggjandi eldhús og borðstofu/stofu.

Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi, fatahengi.
Stofa/borðstofa: Einstaklega björt og opin, partket á gólfi, útgengt á 13,4 fm þaksvalir með útsýni. 
Eldhús: Hvít innrétting, viðarlitaðir skápar, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, spanhelluborð.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, sturta með gleri, hvít innrétting, upphengt salerni, speglaskápur með led lýsingu undir.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, rúmgóður fataskápur, gólfsíður gluggi, útgengt á svalir.
Svefnherbergi: Rúmgott, parket á gólfi, fataskápur.
Þvottahús: Innan íbúðar, flísar á gólfi, hvít innrétting, vaskur.
Geymsla: 5,7 fm ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
 
Allar upplýsingar um eignina veitir Tara Sif Birgisdóttir löggiltur fasteignasali í síma 847 8584 / tara@fastlind.is
​​​​​​
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27