Verð | 117,9 |
Stærð | 114 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 1.036 |
Skráð | 17.3.2023 |
Fjarlægt | 24.3.2023 |
Byggingarár | 2020 |
mbl.is |
Nánari lýsing: Stofur og eldhús eru í sameiginlegu opnu rými og útgengt út á svalir sem snúa til suðvesturs ásamt 25,7 fm þaksvölum og útigeymslu. Gert er ráð fyrir heitum potti á þaksvölunum. Möguleiki á aukaherbergi við enda stofu.Hjónaherbergi með góðu skápaplássi.Herbergi með skápum. Baðherbergi með sturtu, og þvottaaðstöðu. Fataskápur í holi. Sjá heimasíðu hér
HÖNNUÐIR: Húsin eru hönnuð af Alark Arkitektum og innanhúshönnun er af M/Studio Reykjavík. Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum.
HÚSIÐ: Húsið er klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir danskir ál-tré gluggar frá Velfac sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
ÍBÚÐIR: Aukin lofthæð í öllum íbúðum, 280 cm og gólfsíðir gluggar. Vandaðar Innréttingar frá danska fyrirtækinu JKE design. Quartz borðplötur í eldhúsi og á baðherbergi frá Granítsmiðjunni. Lýsing er hönnuð af Lumex. Rafmagnstæki eru frá Miele þar á meðal uppþvottavél í eldhúsi. Blöndunar- og hreinlætistæki frá Tengi.
Íbúðirnar afhendast án megingólfefna en á baðherbergi og þvottahúsi eru vandaðar ljósar flísar.
BÍLAKJALLARINN, BÍLSKÚRAR OG GEYMSLUR: Bílastæði fylgir öllum íbúðum og góðar geymslur. Talsvert er af bílskúrum sem fylgja stærri íbúðum.
SAMEIGINLEGUR GARÐUR: Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu. Bekkir og leiksvæði með leiktækjum og mjúku undirlagi.
Afhending við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veita:
Jason Kristinn Ólafsson lögg. fasteignasali sími: 775-1515 eða jko@miklaborg.is
Svan Gunnar Guðlaugsson lögg. fasteignasali sími: 697-9300 eða svan@miklaborg.is
Páll Þórólfsson lögg. fasteignasali sími: 8939929 eða pall@miklaborg.is
Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is