Hraunbraut 6, 805

Fjarlægð/Seld - Eignin var 77 daga á skrá

Verð 275,0
Stærð 100
Tegund RaðPar
Verð per fm 2.745
Skráð 20.10.2022
Fjarlægt 6.1.2023
Byggingarár
mbl.is

Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:
Í einkasölu:

Tilbúið til innrétinga, raðhús að Borg í Grímsnesi.

Um er að ræða 3 íbúðir sem eru í byggingu og skilast þær allar fullbúnar að utan og tilbúnar til innréttinga að innan.
Sú minnsta er 116 fermetrar og er hún á 40.600.000 kr.
Sú næst stærsta er 124 fermetrar og kostar hún 43.400.000 kr
Sú stærsta er 166 fermetrar og kostar hún 58.100.000 kr
Allar seljast þær fokheldar skv. neðangreindri skilalýsingu, en mögulegt er að fá þær lengra komnar skv. samkomulagi

Álklæddir timburgluggar hvítit inni og úti
Dökkgrátt bárustal á veggjum 
Litað stál á þakköntum og lítaðar stál rennur 
Aluzink á þaki
Pallur klæddur með timbri 
Skjólveggir milli íbúða baka til klæddir með bárustáli
Lagnir fyrir pott tilbúnar undir palli
Lóð grófjöfnuð og mulningur í bílaplani
 
Gólfhiti í öllum gólfum frágenginn að fullu
Lagnir fyrir handklæðaofna inni á böðum
Allir veggir klæddir tvöföldu gipsi spartslað og málað eina umferð
Loft klædd með gipsi og full málað
Raflagnir og innfeld ljós frágengin.

Borg er ört stækkandi þéttbýliskjarni, þar sem finna má verslun, öflugan leik- og grunnskóla, íþróttahús sundlaug og stjórnsýsluhús.
Stutt er í alla helstu ferðamannastaði suðurlands og þá eru fjöldi golfvalla í nágrenninu.
Nýlegt skipulag á svæðinu gerir ráð fyrir enn frekari uppbyggingu, þar sem gert er ráð fyrir m.a. Hoteli og þjónustumiðstöð.

Nánari upplýsingar veitir:
Sverrir Sigurjónsson löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / sverrir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9