Grænatún 14, 200
Fjarlægð/Seld - Eignin var 11 dag á skrá
Verð |
84,9
|
Stærð |
223
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
381
|
Skráð |
19.10.2020 |
Fjarlægt |
30.10.2020 |
Byggingarár |
1956 |
mbl.is |
|
EIGNIN ER SELD OG Í FJÁRMÖGNUNARFERLI.
.
Fasteignasalan Gimli og Sigþór Bragason Lögg.fasteignasali sími 899 9787 kynna : Glæsileg 222,6 fm einbýlishús við Grænatún í Kópavogi. Stór bílskúr( 40 fm). Frábær útiaðstaða með verönd með heitum potti og garðskáli. Mikið endurnýjuð eign með fallegu útsýni.
.
Nánari lýsing,
Efri hæð: Komið inn í flísalagða forstofu, innbyggður fataskápur. Parketlagt hol miðsvæðis á hæðinni. Eldhús með fallegri nýrri innréttingu með helluborði, tveimur bakarofnum í vinnuhæð og er annar þeirra jafnframt örbylgjuofn, tvöfaldur kæliskápur með klakavél. Rúmgóður borðkrókur. Gengið er niður eitt þrep niður í stofuna, stofan er mjög björt með gluggum á tvo vegu. Rúmgóð gestasnyrting með flísalögðu gólfi, innrétttingu með góðu skápaplássi og opnanlegum glugga. Á efri hæðinni er tvö rúmgóð svefnherbergi.
Neðri hæð: Hringstigi er á milli hæða og er komið inn á hol þaðan sem gengi er inn í öll herbergi hæðarinnar. Tvö svefnherbergi eru á hæðinni ( hægt að bæta því þriðja við). Snyrtilegt þvottahús með glugga. Flísalagt baðherbergi með innréttingu, sturtuklefa og glugga. Einnig er sér inngangur á þessa hæð.
.
Mjög stór bílskúr eða 40.0 fm með vatni, hita og rafmagni. Bílskúrshurðaopnari er á hurð.
.
Rúmgóður garðskáli er við húsið og er hann með ofni, eldhúsaðstöðu og snyrtingu. Framan við garðskálann er stór skjólsæl verönd og heitur pottur á henni.
Garðurinn umhverfis húsið er 768 fm að stærð og er mikill og fallegur trjágróður aftan við húsið og framlóðin er öll hellulögð.
.
Mikið og fallegt útsýni er frá efri hæðinni til Akrafjalls og Esjunnar.
.
Eignin er mikið endurnýjuð og nýleg var skipt um þakjárn, pappa og þakrennu, flestir gluggar og gler eru nýjir. Ný eldhúsinnrétting og tæki. Nýtt parket. Nýjar innihurðir eru á efri hæðinni.
Skv FMR er íbúð skráð 146,6 fm, bílskúr 40,0 fm og garðskáli 36.0 fm samtals 222,6 fm að stærð.
.
Þetta er fallegt og vel skipulagt hús með frábæra útiaðstöðu, sólpall, garðskála og heitan pott og mikið endurnýjað
.
Allar upplýsingar og bókun á skoðun veitir Sigþór Bragason lögg.fasteignasali í síma 899 9787 eða sb@gimli.is.