Austurvegur 24-26, 800

Fjarlægð/Seld - Eignin var 163 daga á skrá

Verð 79,0
Stærð 195
Tegund Einbýli
Verð per fm 405
Skráð 28.2.2023
Fjarlægt 11.8.2023
Byggingarár 1966
mbl.is

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:
Vel staðsett íbúðarhús á tveimur hæðum miðsvæðis á Selfossi.
Húsið er steypt, múrað og málað utan byggt árið 1966 og var byggt fyrir stöðvarstjóra Pósts og síma á Selfossi.
Húsið er innréttað sem tvær íbúðir.
Efri hæðin skiptist í forstofu, geymslu, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús. Baðherbergið er flísalagt bæði gólf og veggir en þar er lítil innrétting og sturta. Ágæt eldri innrétting er í eldhúsi, í stofu er útgengt á svalir. Harðparket er á gólfi. Herbergin eru parketlögð og er góður fataskápur í hjónaherbergi.
Íbúðin á neðri hæð skiptist í svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi.  Ágæt innrétting er í eldhúsi, baðherbergi er flísalagt bæði gólf og hluti veggja, þar er sturta og lítil innrétting. Parket er á öðrum gólfum.
Að auki er á neðri hæðinni rúmgott þvottahús fyrir báðar hæðir en inngangur í íbúð neðri hæðar er í gegnum þvottahúsið.
Sólpallur með skjólveggjum er við húsið, lóðin er gróin og bílaplan er malbikað.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19