Grímsgata 4 (208), 210
Fjarlægð/Seld - Eignin var 10 daga á skrá
Verð |
99,9
|
Stærð |
124
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
806
|
Skráð |
20.4.2024 |
Fjarlægt |
1.5.2024 |
Byggingarár |
|
mbl.is |
|
LIND Fasteignasala og ÞG Verk kynna með stolti: Nýjar og glæsilegar íbúðir við Grímsgötu 2-4 í Urriðaholti, 210 Garðabæ. Um er að ræða fjölbreyttar 2ja - 6 herbergja íbúðir í lyftuhúsi og fylgja bílastæði í bílakjallara flestum íbúðum. Svalir eða sérafnotaflötur fylgir öllum íbúðum ásamt séreignageymslu í jarðhæð.
Bókið skoðun hjá Heimi Hallgrímssyni, lögg. fasteignasala, heimir@fastlind.is eða í síma 849-0672
Húsið er steinsteypt (efsta hæð CLT einingar) og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.
Íbúð 208: Er 124,0 fermetra fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð með 9,0 fm svölum. Þar af er geymsla 12,7 fermetrar og sérstæði í bílageymslu. Hjónasvíta með fataherbergi. Afhending er í maí/júní 2024 með fyrirvara um að öryggisúttekt sé komin á húsið.
Nánari lýsing: Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús með eyju í alrými með stofu/borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Útgengt á 9,0 fm svalir frá stofu með glæsilegu útsýni.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: https://tgverk.is/grimsgata-2-4/
Húsin eru vel staðsett steinsnar við Urriðaholtsskóla, sem er grunn- og leikskóli hverfisins. Einn besti golfvöllur landsins (Oddur) er í göngufæri og sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarhrauni og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvirkjum.
ÞG Verk hafa yfir 25 ára reynslu á byggingarmarkaði. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma. Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru einkunnarorð ÞG verks og fyrirtækið kappkostar að eiga gott samstarf við viðskiptavini sína.
Ef misræmi er á milli eignaskiptasamnings, söluyfirlits og/eða sölusíðu þá gilda þær upplýsingar sem koma fyrir í eignaskiptasamningi og samþykktum teikningum.