Verð | 115,0 |
Stærð | 81 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 1.422 |
Skráð | 18.4.2023 |
Fjarlægt | 12.5.2023 |
Byggingarár | 2019 |
mbl.is |
Austurhöfn er glæsileg bygging með metnaðarfullri hönnun á einstökum reit við Reykjavíkurhöfn. Í engu er til sparað, hvort sem litið er til innréttinga, tækja, þjónustu eða frágangs innan sem utan. Skjólgóður garður er rammaður inn af byggingunni og er hann eingöngu aðgengilegur fyrir íbúa hússins.
Á vefsvæði Austurhafnar er að finna upplýsingar um allt er viðkemur byggingu og umhverfi.
Sjá hlekk á íbúðina hér : https://austurhofn.is/apartment/apartment-409/
Glæsilegt eikarparket er á stofu og svefnherbergi, en baðherbergi og þvottahús eru flísalögð. Sérsmíðaðar innréttingar úr amerískri hnotu frá ítalska handverkshúsinu Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og er klætt marmaraflísum. Almennt er íbúðunum skilað með fullbúnu eldhúsi, með tækjum af vönduðustu gerð frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi er í öllum íbúðum, sem gerir íbúum kleift a stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, ofl
Íbúð 409 er á 4.hæð. Henni fylgja glæsilegar 12 fm suður svalir. Góðir skápar eru í forstofu, en þaðan er gengið beint inn í bjarta og stóra stofuna. Úr stofunni er gengt út á stórar svalirnar sem ná yfir allan endaveginn. Gott sér þvottahús er innan íbúðarinnar og svefnherbergið er rúmgott með mjög góðum skápum Hún er skráð 74,3 fm og því til viðbótar er 5,6 fm geymsla i kjallara.
Jason Kristinn Ólafsson lögg. fasteignasali í síma 775-1515 eða jko@miklaborg.is
Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 897-0634 eða throstur@miklaborg.is