Bergstaðastræti 30, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 13 daga á skrá

Verð 65,9
Stærð 62
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 1.054
Skráð 3.5.2024
Fjarlægt 17.5.2024
Byggingarár 1928
mbl.is

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna:

Falleg, mjög vel skipulögð og töluvert mikið endurnýjaða íbúð í Þingholtunun við miðbæ Reykjavikur.


Eignin er á fjórðu hæð í litlu fjölbýli, með tvö góð svefnherbergi, endurnýjuðu baðherbergi og eldhúsi sem er endurnýjað að hluta.

Íbúðin er nýmáluð og getur verið afhend við kaupsamning.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax!

Íbúðin er í góðu steinhúsi sem hefur í gegnum árin fengið gott viðhald. Síðustu árin hafa verið endurnýjaðir gluggar og gler, útihurð, nýtt járn á þaki, hús múrviðgert og málað 2019 síðast.

Eignin Bergstaðastræti 30 er með birta stærð 62.5 fm, þar af er íbúðin sjálf skráð 56,6 fm og sérgeymslan er skráð 5,9 fm.

Nánari lýsing á íbúð og endurbótum:


Baðherbergi - var að fullu endurnýjað, lagður gólfhiti með sér hitastýringu, gólfið flotað og lakkað, ný innrétting með skúffum og vask, flísalögn á klósettvegg og inn í sturtu, ný blönduntæki, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara. Frárennslislögn endurnýjuð úr baðherbergi og niður á næstu hæð, allar vatnslagnir settar nýjar á baði og öll blöndunartæki endurnýjuð. Einnig hluta til veggir gipsklæddir, sparslaðir og fullmálaðir. Rafmagnsdósir og slökkvarar endurnýjaðir og felldir inn í veggi.

Gangur - er parketlagður, allir veggir voru gipsklæddir, sparslaðir og málaðir. Rafmagnsdósir og slökkvarar endurnýjaðir og felldir inn í veggi. Lýsing á gangi er halogen.

Svefnherbergi - er parketlagt, bjartir gluggar með útsýni yfir að Ráðhúsinu og tjörninni. Vatnsofn er til kyndingar. Rafmagnstenglar og slökkvarar endurnýjaðir og felldir inn í veggi.

Eldhús - lagður gólfhiti með sér hitastýringu, gólfið flotað og lakkað. Notuð en snyrtileg innrétting á einum vegg með neðri skápum og skúffum, dökk borðplata og falleg flísalögn á vegg. Sett var ný eldavél og til staðar er eldri uppþvottavél. Veggir hvítmálaðir og er fallegt útsýni yfir að Ráðhúsinu og tjörninni. Eldri vatnslagnir eru að hluta, nýr vaskur og ný blöndunartæki. Gott pláss fyrir ísskáp og matarborð í eldhúsi. Rafmagnsdósir og slökkvarar endurnýjaðir og felldir inn í veggi.

Svefnherbergi - er parketlagt, veggir gipsklæddir, sparslaðir og fullmálaðir. Rafmagnsdósir og slökkvarar endurnýjaðir og felldir inn í veggi.

Stofa - rúmgóð og björt, parket er á gólfi, öll nýmáluð hvít, smá geymsla í horni inni við þakrými og er vatnsofn til kyndingar. Veggir voru gipsklæddir, sparslaðir og fullmálaðir. Rafmagnsdósir og slökkvarar endurnýjaðir og felldir inn í veggi.

Geymsla - rúmgóð 5,9 fm geymsla er á baklóð hússins í sér húsi með sér inngangi.
 
Fallegt hús á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur sem hefur alla tíð fengið gott viðhald.  Í húsinu hefur verið starfandi húsfélag til lengri tíma. 

Upplýsingar gefur: 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37