Bjarkarholt 10, 270

Fjarlægð/Seld - Eignin var 170 daga á skrá

Verð 66,5
Stærð 123
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 542
Skráð 16.6.2019
Fjarlægt 3.12.2019
Byggingarár
mbl.is

Miklaborg kynnir: Íbúðir fyrir 50 ára og eldri í nýjum og vaxandi miðbæjarkjarna Mosfellsbæjar þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. verslanir, heilsugæslu, bókasafn ásamt því sem að Lágafellslaug er í göngufæri og Golfvöllur Mosfellsbæjar í grennd. Útivistarperlur og gönguleiðir eru fjölbreyttar í og umhverfis Mosfellsbæ. Björt 3ja herbergja, 122,8 fm íbúð á 4.hæð með svölum í suður og tveimur stæðum í lokaðri bílgeymslu. Eignin skiptist í anddyri, forstofuherbergi, baðherbergi með sturtu, þvottahús, opið eldhús og rúmgóð stofa þaðan sem útgengt er á suðursvalirnar. Rúmgott hjónaherbergi með sér baðherbergi og fataskápum. Stæði í lokaðri bílgeymslu ásamt sér geymslu í kjallara.

Bjarkarholt 8-10 er 18 íbúða lyftuhús á fjórum hæðum og flestar íbúðir eru með stæði í lokaðri bílgeymslu. Íbúðirnar eru frá 65 fm upp í 180 fm þakíbúð. Húsið stendur sunnanmegin í lóðinni og eru flestar íbúðir með svalir í suður. Húsið er klætt að utan með álklæningu og eru innréttingar og tæki af vandaðri gerð. 

Á vef GG verk má sjá nánari upplýsingar um íbúðina, skilalýsingu og nánari kynningu á húsinu.

NÁNARI LÝSING íbúðar 402: Komið inn í anddyri með fataskápum. Forstofuherbergi er rúmgott og með góðum skápum. Rúmgott alrými með opnu eldhúsi og stofu með svölum í suður. Baðherbergi er með fallegri innréttingu, glugga og þröskuldslausum sturtuklefa.  Þvottahús í miðju íbúðar.  Hjónaherbergi er með sérbaðherbergi er rúmgott og með góðum skápum.  Í kjallara er sér geymsla ásamt stæði í bílgeymslu.

Nánari upplýsingar veita:

Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason lögg. fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is
Óskar H. Bjarnasen lögg. fasteignasali í síma 691-1931 eða ohb@miklaborg.is
Friðrik Stefánsson hdl. og aðstoðarmaður fasteignasala í síma 616-1313 eða fridrik@miklaborg.is

Bjarkarholt 8-20 samanstendur af þremur fjölbýlsihúsum 4-5 hæða með lyftu.  Sérstæði í lokaðri bílgeymslu fylgir flestum íbúðum en á sömu hæð eru sérgeymslur íbúða ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Um 30 bílastæði eru á lóðinni.   Íbúðir á jarðhæð hafa sérafnotarétt fyrir framan íbúðir sínar.  Íbúðir á efstu hæðum eru flestar með stórum þaksvölum þaðan sem er frábært útsýni. 

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6