Verð | 82,7 |
Stærð | 80 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 1.027 |
Skráð | 9.5.2024 |
Fjarlægt | |
Byggingarár | 2023 |
mbl.is | 1259614 |
Íbúð 210
Vel skipulögð og björt 80,5 fm, þriggja herbergja íbúð á annarri hæð. Sjá sölusíðu -> Orkureiturinn
Orkureiturinn er skipulagður og hannaður með sjálfbærni og vistvæn sjónarmið að leiðarljósi. Sérstök áhersla er lögð á endurnýtingu orku og blágrænar ofanvatnslausnir. Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM vistvottunarkerfinu og hefur það fengið einkunina Excellent.
Afhending okt./nóv 2024
PANTIÐ EINKASKOÐUN
Nánari upplýsingar veitir Jórunn Skúladóttir löggiltur fasteignasali í síma 845 8958 eða jorunn@miklaborg.is
Eignin skiptist í forstofu með góðu skápaplássi. Inn af forstofu er baðherbergi er með sturtu og fallegri innréttingu. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi. Við enda forstofu er rúmgott svefnherbergi. Eldhús er með fallegri innréttingu og er opið inn í rúmgott alrými, þar sem einnig eru stofa og borðstofa. Mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum er inn af alrými. Útgengt er á suðaustur svalir út af alrými.
Íbúðin afhendist með vönduðum innréttingum frá Nobila (sölu- og þjónustuaðili: GKS) innrétttingarþema sem ákveðin hafa verið af innanhússarkitekt verkefnisins, Rut Káradóttir er R3 - Jörð
Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Allt loft sem fer í gegnum kerfið er síað og er því minna af svifryki og frjókornum í íbúðunum en ella.
Nánari upplýsingar veitir Jórunn Skúladóttir löggiltur fasteignasali í síma 845 8958 eða jorunn@miklaborg.is og Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is