Ljósheimar 14-18, 104
Fjarlægð/Seld - Eignin var 14 daga á skrá
Verð |
59,9
|
Stærð |
104
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
579
|
Skráð |
2.2.2023 |
Fjarlægt |
17.2.2023 |
Byggingarár |
1965 |
mbl.is |
|
Domuseignir fasteignasala kynnir vel skipulagða 4ra herbergja endaíbúð á annarri hæð í lyftuhúsi með sérinngangi af svölum við Ljósheima í Reykjavík. Íbúðin er 103,5 fm, þar af 6,2 fm geymsla. Verslunarmiðstöðin Glæsibær er í göngufæri og Vogaskóli og Menntaskólinn við Sund er í næsta nágrenni. Stutt í Laugardalinn og Skeifuna þar sem er fjölbreytt þjónusta.
Um er að ræða dánarbú og hafa eigendur ekki búið í íbúðinni og vita því ekki um ástand eignarinnar og eru kaupendur hvattir til að skoða eignina vel fyrir tilboðsgerð þar sem upplýsingar seljenda eru takmarkaðar. Nánari lýsing: forstofa, eldhús, hol, stofa, borðstofa, 3 svefnherbergi, og baðherbergi. Í sameign er sér geymsla, þvottahús og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Forstofa: Forstofan er með flísum á gólfi og fatahengi.
Hol: Holið er með flísum á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið er með ljósri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á milli skápa, borðkrók og korkur á gólfi.
Stofa/borðstofa: Stofan er rúmgóð og björt með stórum gluggum með rennihurð út á svalir. Fallegt útsýni frá stofu og svölum. Parket á gólfi.
Herbergi: Þrjú herbergi eru í íbúðinni. Tvö herbergin eru með dúk á gólfi og fataskápum. Eitt herbergið er með plastparketi á gólfi. Útgengi út á svalir úr einu herberginu.
Baðherbergi: Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtu og tengi fyrir þvottavél, gluggi.
Sameign: Í sameign er sér geymsla sem tilheyrir íbúðinni og sameiginlegt þvottahús og hjóla- og vagnageymsla.
Hér er um að vel skipulagða eign með þremur svefnherbergjum miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. Eign sem vert er að skoða.
Allar nánari upplýsingar og ráðgjöf um eignina veitir Elsa löggiltur fasteignasali sími 664-6013 eða elsa@domuseignir.is