Garðastræti 40, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 35 daga á skrá
Verð |
79,9
|
Stærð |
151
|
Tegund |
Hæðir |
Verð per fm |
528
|
Skráð |
7.5.2021 |
Fjarlægt |
11.6.2021 |
Byggingarár |
1935 |
mbl.is |
|
Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu efri hæð í reisulegu húsi við Garðastræti í 101 Reykjavík. Eignin er skráð 151,4 fm að stærð, þar af íbúðarrými 141,3 fm og geymsla 8,1 fm, og er í dag innréttuð sem þrjár íbúðir en er skv. teikningu skipulögð sem þrjú svefnherbergi, fataherbergi, eldhús, tvö baðherbergi, tvær stofur og tvennar svalir. Húsið er teiknað af Einari Sveinssyni og Sigm. Halldórssyni og eru tvær hæðir og kjallari. Eign með mikla möguleika á frábærum stað.
***Áhugasamir geta bókað einkaskoðun hjá brynjolfur@heimili.is***
Nánari lýsing:
Komið inn í snyrtilega sameign þar sem er dúkur á gólfi. Eignin er í dag skipulögð sem þrjár útleigueiningar.
Íbúð eitt er með anddyri, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og stofu. Svefnherbergi er með dúk á gólfi, upprunalegum fataskápum og ágætum glugga. Eldhús er með eldri innréttingu, borðkróki og glugga til suðurs. Á gólfi eru korkflísar. Stofa er rúmgóð, með gluggum á tvo vegu og útgengi á sér svalir íbúðar. Baðherbergi íbúðar er með flísum á gólfi og á veggjum og er með sturtuklefa innan rýmis.
Íbúð tvö skiptist í stofu, gang þar sem er eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. Á gólfi í stofu er dúkur, baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, er með ágætri innréttingu, sturtuklefa og útgengi á svalir. Svefnherbergi er með dúk á gólfi og innan rýmis eru góðir gluggar og fataskápar.
Íbúð þrjú skiptist í anddyri, baðherbergi, eldhús og stofu/herbergi. Baðherbergi er með ágætri innréttingu, glugga með opnanlegu fagi, WC og sturtuklefa. Á gólfum er dúkur utan baðherbergis þar sem eru flísar.
Í kjallara er sérgeymsla íbúðar sem og sameiginlegt þvottahús og eigninni tilheyrir skv. eignaskiptasamningi risloft sem er ekki inni í uppgefnum fermetrafjölda eignar.
Einstakt tækifæri á að eignast eign með mikla möguleika á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s: 896-2953, brynjolfur@heimili.is