Sunnusmári 28 (604), 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var tekin út samdægurs

Verð 134,9
Stærð 145
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 931
Skráð 26.2.2024
Fjarlægt 27.2.2024
Byggingarár 2018
mbl.is

Miklaborg kynnir: Glæsilega þakíbúð með stórbrotnu útsýni . Einstök staðsetning í suð-vestur enda hverfisins, þar sem nýtur kvöldsólar og sólarlagið er magnað. 47,5 fm þaksvalir til suður og vestur auk 6,3 fm austursvala. Stórir gluggafletir á þrjá vegu. Sérmerkt stæði í bílageymslu. Tvennar stórar stofur, tvö svefnherbergi, gott baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Aukin lofthæð og glæsilegt eikar parket. Fasteignamat 2024 verður 103,7 M. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s;773-6000 og thorunn@miklaborg.is

Komið er í anddyri með góðum skápum, það opnast inn í glæsilegt mjög bjart 41,8 fm alrými sem telur eldhús með eldurnareyju, borðstofu og aðra af tveimur stofum þakíbúðarinnar. Stórir gluggafletir eru eftir allri vesturhliðinni og útsýni stórbrotið til sjávar og fjalla. Úr alrýminu er gengið út á þaksvalirnar sem ná eftir allri vesturhliðinni og suðurfyrir þannig að sólar nýtur til sólarlags.

Eldhúsið er glæsilegt með góðu skápaplássi og kvartssteini í borðum. Innbyggð uppþvottavél frá Miele fylgir og vandaður innbyggður ísskápur frá Liebherr. Allar innréttingar og skápar eru dökkar og glæsilegar frá ítalska framleiðandanum Cubo Design, nema þvottahúsinnréttingar. Span helluborð og blástursofn er frá Miele. Alrýmið rennur saman við aðra glæsilega bjarta 32,7 fm stofu í suðurhluta íbúðarinnar. Þaðan er útgengt á austur svalir þar sem sólin skín á morgnana. Næst er svefnherbergisgangur, þar sem fremst er þvottahús með ræstivaski veglegri innréttingu frá Fríform með góðum skápum. Næst er baðherbergi með fallegri innréttingu, með kvartssteini í borðum og rúmgóðu sturturými. Barnaherbergið er 9,3 fm með góðum skápum og hjónaherbergið er rúmgott eða 16,2 fm með miklum skápum eftir heilum vegg. Baðherbergi og þvottahús eru flísalögð en á öllum öðrum rýmum er glæsilegt eikarparket frá Parka.

Fyrir öllum gluggum eru rafdrifnar snjallgardínur sem má stjórna með símanum eða fjarstýringu, einnig er mynddyrasímakerfi og Danfoss forritanlegir ofnahitastillar fyrir snjallsíma. 8,9 fm sér geymsla í kjallara er inni í birtu flatarmáli íbúðarinnar.Sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir, en þar er búið að setja upp grunnkerfi fyrir rafbílahleðslu. 201 Smári er sérlega vel staðsett borgarhverfi í miðpunkti höfuðborgarsvæðisins þar sem stutt er í allar stofnbrautir og örstutt í fjölbreytta verslun og þjónustu í Smáralind. Auk þess sem stutt er í leik og grunnskóla, íþróttaaðstöðu og heilsugæslu. Sérstaklega falleg og björt þakíbúð með mögnuðu útsýni á þessum vinsæla stað. Allar frekari upplýsingar veitir: Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali s:773-6000 eða thorunn@miklaborg.is


Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43