Borgartún 28A, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 36 daga á skrá

Verð 89,9
Stærð 110
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 814
Skráð 28.2.2024
Fjarlægt 5.4.2024
Byggingarár 2019
mbl.is

LANDMARK fasteignamiðlun og Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali (s: 823-2600 / julius@landmark.is) kynna:
Bjarta og fallega þriggja herbergja 110,4 m2 íbúð á 2. hæð ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við í Borgartún 28A í Reykjavík. Rúmgóðar svalir. Eignin er vönduðu álklæddu lyftuhúsi á baklóð við Borgartún, byggt árið 2019. Vandaðar innréttingar og fataskápar eru frá Axis matt ljósgráar að lit með ríkulegu geymslurými. Öll rými íbúðarinnar eru rúmgóð, þar á meðal alrýmið með eldhúsi og stofu sem er einstaklega bjart og rúmgott. 

Eignin skiptist í forstofu, gang, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús / stofu og geymslu. 
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands: Íbúð er 101,8 m2 merkt 020203, geymsla er 8,6 m2 merkt 020016, samtals 110,4 m.2 Stæði í bílageymslu er merkt 02B08.

Sækja söluyfirlit strax

 
Nánari lýsing
Forstofa er með fataskáp, harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi I (hjónaherbergi) er rúmgott með fataskápum sem ná yfir heilan vegg, harðparket á gólfi. 
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt með fallegum 60x60 flísum í hólf og gólf, með vandaðri baðinnréttingu og þvottahúsinnréttingu, upphengdu salerni, sturtu með glerskilrúmi og handklæðaofni á vegg. Blöndunartæki í sturtu eru innbyggð. 
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp, harðparket á gólfi. 
Eldhús er með vandaðari innréttingu sem nær upp í loft, með innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél, bakarofni í vinnuhæð, eyju með helluborði og lofthengdum gufugleypi með ljósi. Lýsing er undir innréttingu, harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð, harðparket á gólfi. Útgengi á stórar svalir í vestur. 
Sér geymsla í kjallara með sameiginlegu þjófavarnakerfi. 
Stæði í lokuðum bílakjallara. Húsið hefur verið rafbílavætt. Ekki er hleðslustöð í stæði. 

Um er að ræða einstaklega vandaða og smekklega nýlega þriggja herbergja íbúð í vönduðu fjölbýlishúsi á frábærum stað í túnunum, 105 Reykjavík. Öll helsta verslun og þjónusta er í næsta nágrenni, auk þess sem stutt er niður að sjávarsíðunni. 
 
Allar nánari upplýsingar veita:
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / monika@landmark.is / 823-2800
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / julius@landmark.is / 823-2600
Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31