Tunguvegur 23, 108

Fjarlægð/Seld - Eignin var tekin út samdægurs

Verð 160,0
Stærð 368
Tegund Einbýli
Verð per fm 435
Skráð 18.7.2022
Fjarlægt 19.7.2022
Byggingarár 1974
mbl.is

Fasteignasalan TORG kynnir: Einbýli með mikla möguleika við Túngötu 23 í Reykjavík. Eignin er skráð 367,9 fm en til viðbótar eru ca 50 óskráðir fermetrar á neðri hæð hússins sem eru innréttaðir sem íbúð. Húsið hefur verið í rekstri sem gistiheimili og er innra skipulag þess ekki í samræmi við teikningar. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is.  

Nánari lýsing: Efri hæðin er á tveimur pöllum og skiptist skv. teikningum í anddyri, skála, sjónvarpsstofu/dagsstofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og þvottahús. Í dag er búið að hólfa sjónvarpsstofuna/dagsstofuna niður í þrjú svefnherbergi. Neðri hæðin skiptist skv. teikningum í anddyri, bílskúr, tvær geymslur, vinnustofu, föndurherbergi og baðherbergi. Geymslurnar, vinnustofan og föndurherbergið er í útleigu sem herbergi. Til viðbótar við neðri hæðina er ca 50 fm óskráðir rými sem búið er að innrétta sem íbúð og er í útleigu. 

Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is.  

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16