Eskihlíð 8, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 16 daga á skrá

Verð 86,9
Stærð 130
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 669
Skráð 19.12.2023
Fjarlægt 5.1.2024
Byggingarár 1955
mbl.is

Miklaborg kynnir: Glæsileg 130 fm, 4-5 herbergja íbúð á 1. hæð, við Eskihlíð 8 í 105 Reykjavík. Eignin er ný uppgerð, nýtt parket, nýjar flísar á öllum böðum, nýleg raftæki og ný blöndunartæki. Skv. FMR er eignin 129.8 fm, þar af er geymsla 7 fm.

Að utan hefur nýlega verið klárað laga þak og mikið endurnýjað utanhús.
Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, símim 775 1515 eða í netfangið jko@miklaborg.is - löggiltur fasteignasali.

Nánari lýsing: Komið inní hol með parketi. Geymsla innaf holi. Eldhúsið er endurnýjað, bjart með hvítri innréttingu og eyju. Öll raftæki eru nýleg frá Siemens. Stofan er björt með samliggjandi borðstofu (getur verið nýtt sem fjórða svefnherbergið). Góðir gluggar og útgengi er á vestursvalir. Nýtt parket. Svefnherbergisgangur: Er með parketi og stórum fataskáp. Baðherbergið: Er flísalagt í hólf og gólf. Hvít innrétting, sturta með gleri, upphengt klósett. Innangengt úr hjónaherberginu. Hjónaherbergi: Bjart með parketi á gólfi og góðu skápaplássi, innangengt er inn á baðherbergi með sturtu. Klósett á herbergjagangi: Upphengt klósett með flísum í hólf og gólf og hvítri innréttingu. Þvottahús: Með hvítri innréttingu, vaski, pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt í hólf og gólf. Í þvottahúsinu er sturta. Sameiginlegt þvottahús er líka á kjallarar. Einnig er gluggi á þvottahúsinu. Svefnherbergin: Er með parketi á gólfi og góðum glugga. Sérgeymsla: Er í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu. Samkv. upplýsingum frá seljanda: Endurgert eldhús og opnað, bætt við eyju. Rafmagn hefur verið endurnýjað að hluta, bætt hefur við nýjum tenglum fyrir ljós og innstungur. Einnig hefur verið bætt við tenglum fyrir ofan eldhúseyjuna og tenglum fyrir sjónvarp. Parket ( frá Agli Árnasyni) er á allri íbúðinni með vönduðu undirlagi. Bætt hefur verið við gestaklósetti. Þvottahús hefur verið uppfært og endurgert með sturtu. Öll ný blöndunartæki frá Grove og upphengd klósett. Eignin er öll ný máluð. Ofnar hafa verið málaðir og fæturnir sem náðu niður á gólf fjarlægðir. Drenað hefur verið í kringum húsið og skólplagnir skiptar út. Sameign hefur einnig verið haldið vel við. Gluggum skipt út í geymsluherbergi árið 2013, Sameignin máluð og stigagangur teppalagður árið 2017. Framkvæmdir:- Húsið múrviðgert og málað 2022 - Skipt um glugga 2013 - Drenað 2018 - Lögn fóðruð út í götu 2021 - Þak 2023.

Eignin er á frábærum stað, stutt í alla þjónustu, skóla, heilsugæslu, leikskóla og fallegar göngluleiðir eru til staðar.

Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, símim 775 1515 eða í netfangið jko@miklaborg.is - löggiltur fasteignasali.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20