Furugerði 49, 108

Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá

Verð 111,5
Stærð 272
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 410
Skráð 12.10.2023
Fjarlægt 20.10.2023
Byggingarár 2023
mbl.is

Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna með stolti;
Ný, vönduð og glæsileg 5 herbergja raðhús með tveimur baðherbergjum og þvottahúsi við Furugerði í Reykjavík til afhendingar við kaupsamning.
Spennandi nýbyggingar úr vistvænum byggingarefnum á mjög eftirsóknarverðu svæði sem henta öllum aldurshópum. Íbúðir eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi. 
Furugerði 49 er endaraðhús austanmegin, skráð stærð 136 m², þar af er stærð íbúðar 125,5 m² og geymsla í bílakjallara er 10,5 m².  Bílastæði í bílakjallara fylgir.
Bókið skoðun - Elka@fstorg.is - s. 8638813

Nánari lýsing; 
Gengið er inn um aðalinngang í anddyri þar sem er baðherbergi og þvottahús
Úr anddyri er komið inn í alrými þar sem stigi bindur saman hæðir. 
Eldhús, stofa og borðstofa eru í sameiginlegu opnu rými.  Stórir gluggar veita birtu inn í stofu og borðstofu.  Á annarri hæð eru fjögur svefnherbergi ásamt baðherbergi.

Íbúðum er skilað fullbúnum með innréttingum en án gólfefna að undanskildu anddyri og votrýmum (baðherbergi og þvottahús) sem eru flísalögð.
Allar innréttingar eru í ljósum furulit frá Voke3. Í eldhúsi eru borðplötur úr kvartzsteini í ljósum lit frá Technistone. Í eldhúsi eru vönduð innbyggð eldhústæki og spanhelluborð.  Gólfhiti er á neðri hæð en á efri hæð er hefðbundið ofnakerfi. Útveggir og hluti innveggja innan íbúða eru úr krosslímdum timbureiningum og verður yfirborð þeirra annarsvegar sýnilegt CLT og hins vegar gifsklætt, spartlað og málað.
 
Íbúðir eru loftæstar með sjálfstæðu loftskiptakerfi frá norska framleiðandanum Flexit. Kerfið blæs inn fersku lofti í íverurými og dregur út loft frá baðherbergjum, þvottahúsi og eldhúsi. Varmi úr útsoginu er fluttur yfir í ferska loftið með varmaendurvinnslu án þess að blanda loftinu saman. 
Gluggar eru ál-timbur gluggar frá danska framleiðandanum Ideal-Combi, Gler er tvöfalt k-einangrunargler og sérstaklega hljóðeinangraðir þar sem við á.
 
Efnisval er með umhverfisáhrif í huga og uppbygging á húsunum miðast við að notuð séu efni sem þurfa lítið viðhald.  Krosslímdar timbureiningar í burðarvirki húsanna eru einangraðar að utan og klædd veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu.
 
Lóðin Furugerði 23-49 skiptist í tvo reiti, Á reit A eru tvö fjölbýlishús á tveimur hæðum með samtals 20 íbúðum og á reit B eru 10 raðhús á tveimur hæðum. Undir húsunum er staðsteyptur kjallari með geymslum og bílastæðum.
Sér bílastæði í bílakjallaranum fylgir öllum raðhúsunum auk sameiginlegri hjóla/vagnageymslu.  Gott aðgengi er fyrir gangandi og hjólandi umferð að lóðinni frá austur- og vesturenda.
 
Nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins www.furugerdi.is

Upplýsingar veitir Elka í s. 863-8813 - elka@fstorg.is, eða Fasteignasalan TORG s. 520-9595

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37