Goðaborgir 8, 112

Fjarlægð/Seld - Eignin var 23 daga á skrá

Verð 52,9
Stærð 132
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 400
Skráð 12.7.2018
Fjarlægt 4.8.2018
Byggingarár 1996
mbl.is

FASTMOS S: 586-8080 kynnir:  132,4 m2 fimm herbergja íbúð með fallegu útsýni á tveimur hæðum við Goðaborgir 8 í Reykjavík.   Eignin er skráð, íbúð á hæð 88,3 m2, íbúðarherbergi í risi 46,9 m2 og geymsla 2,2 m2.  Eignin skiptist í stofu, eldhús, sjónvarpshol, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og vinnurými.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Neðri hæð.
Gengið er upp á svalir með sér inngangi í gegnum sameiginlegt opið stigahús.  Komið er inn í flísalagt anddyri með fataskáp.  Baðherbergi er við anddyris á vinstri hönd, flísar á gólfi, viðarinnrétting, upphengt salerni, sturtuklefi og handklæðaofn.  Opnanlegur gluggi er á baðherbergi. Við hlið baðherbergis er snyrtilegt eldhús með góðum borðkrók.  Hvít innrétting á gagnstæðum veggjum, flísar á gólfi og milli efri og neðri skápa.  Eldhúsið er með gas helluborði og tengi fyrir uppþvottavél.  Tvö rúmgóð svefnherbergi eru á neðri hæð, bæði með harðparketi og fataskápum.  Stofan er björt með mikilli lofthæð, fer hæst í
5,10 m, harðparket á gólfi, útgengt út á svalir til austurs úr stofu.

Efri hæð.
Timburstigi liggur upp á stigapall með linolium dúk á gólfi. Tvö rúmgóð svefnherbergi eru á efri hæð, bæði með linolium dúk á gólfi og fataskápum.  Baðherbergi er með flísum á gólfi, upphengdu salerni og viðarinnréttingu.  Tengi fyrir þvottavél og skolvaskur eru á baðherberginu.  Ágætur vinnukrókur er á milli hjónaherbergis og baðherbergis.  Þar sem áður var geymsla á efri hæð er nú fínt sjónvarpshol.

Allir fataskápar í eigninni eru sér smíðaðir, baðherbergi neðri hæðar var endurnýjað 2017.  Úr íbúðinni er fallegt útsýni sem nær frá höfninni og yfir Esjuna.  Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla ásamt sér geymslu er á neðstu hæð hússins.

Vættaskóli og leikskólinn Hulduheimar eru í næsta nágrenni og ekki þarf að fara yfir umferðargötu til að komast þangað.

Verð kr. 52.900.000,- Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.
Einnig er hægt að ná í starfsmenn utan vinnutíma Sigurður 899-1987, Svanþór 698-8555, Ingimar 612-2277 og Einar Páll 899-5159

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41