Lyngás 1D, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 25 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 116
Tegund Fjölbýli
Verð per fm
Skráð 17.4.2020
Fjarlægt 12.5.2020
Byggingarár 2015
mbl.is

Domus fasteignasala kynnir glæsilega íbúð í nýlegu lyftuhúsi  með sérinngangi  af svölum á 3. hæð alls 116 fm ásamt stæði í bílgeymslu að Lyngás 1D.

Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, forstofu/hol, 3 svefnherbergi ásamt baðherbergi og þvottahúsi.  Um er að ræða íbúð miðsvæðis í nýlegu fjölbýlishúsi  með útsýni út á Snæfellsjökul.  Örstutt í alla þjónustu, innan við 10 mínútna gangur í skóla, íþróttamiðstöð og sundlaug ásamt fjölda verslanna við Garðatorg. 3 mínútur í strætó.

Andyri: Sérinngangur af svölum. Parket á gólfi og hvítir fataskápar
Eldhús: Opið yfir í stofu, Hvít innrétting, steinn á borðum, Eletrolux bakaraofn og vifta og AEG uppþvottavél. Gler á milli efri og neðri skápa. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi, útgengt út á rúmgóðar svalir. Hægt að sjá yfir á Snæfellsjökul úr stofu.
Hjónaherbergi: Parket á gólfum og hvítir skápar sem ná yfir heilan vegg.
Barnaherbergi: Barnaherbergin eru 2, bæði mjög rúmgóð og með parketi á gólfum. Mjög mikið skápapláss í öðru herberginu.
Baðherbergi: Veggir og gólf flísalögð, Mjög rúmgóð innrétting með stórum spegli með baklýsingu. Upphengt salerni og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús:  Flísalögð gólf, hvítur veggskápur, borð með vaski og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara
Geymsla/sameign:  Mjög rúmgóð geymsla, stór sameiginlega hjólageymsla og bílgeymsla í kjallara.

Stór og skjólgóður sameignlegur garður með skemmtilegu leiksvæði fyrir börn.  Stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. Góð staðsetning, mjög stutt að fara inn og út úr hverfinu.  Eign sem vert er að skoða. 

Allar nánari upplýsingar veitir Elsa B Þórólfsdóttir löggiltur fasteignasali  í síma 6646013 eða á elsa@domus.is
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12