Ásakór 13, 203
Fjarlægð/Seld - Eignin var 3 daga á skrá
Verð |
88,4
|
Stærð |
138
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
639
|
Skráð |
18.12.2023 |
Fjarlægt |
22.12.2023 |
Byggingarár |
2007 |
mbl.is |
|
Hrönn Ingólfsdóttir lgfs.s: 692-3344, Björgvin Þór Rúnarsson lgfs. og Fasteignaland kynna í einkasölu: Mjög fallega og rúmgóða 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð með stæði í bílageymslu í góðu lyftuhúsi við Ásakór 13 í Kópavogi. Um er að ræða 4ra herbergja íbúð sem er skráð 138,4fm og þar af er geymsla skráð 6,2fm. Íbúðin skiptist þannig: Stórt alrými með eldhúsi og stofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, rúmgott baðherbergi, þvottaherbergi innan íbúðar og rúmgóða forstofu. Í sameign er sérgeymsla sem fylgir íbúðinni og sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Einnig er sérmerkt stæði í bílakjallara. Þetta er mjög björt og falleg eign þar sem stutt er í Hörðuvallaskóla og leikskólana Kór, Baug og Austurkór. Öll þjónusta í hverfinu t.a.m Krónan, Nettó, íþróttaaðstaða í Kórnum og stutt er í útivistarperlurnar Guðmundarlund, Elliðavatn og Heiðmörk.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasali gsm 692-3344 eða hronn@fasteignaland.is.Nánari lýsing eignar:Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp með rennihurðum og hurð aðskilur forstofu frá aðalrými.
Alrými: Eldhús, borðstofa og stofa eru í alrými. Stórir gluggar gera rýmið einstaklega bjart og opið.
Eldhús: Í eldhúsinu er falleg eikar innrétting með hvítri borðplötu og góðu skápaplássi. Opið er yfir í stofurýmið frá eldhúsinu.
Stofa: stofan er mjög rúmgóð og björt og samliggjandi eldhúsi. Parket er á gólfi og útgengt út á suð/vestur svalir með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Baðherbergið er mjög rúmgott með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar er með sturtuaðstöðu. Hvít innrétting með dökkri borðplötu og góðu skápaplássi og fallegir upphengdir eikarskápar.. Handklæðaofn er á baðherberginu.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú, öll eru herbergin rúmgóð með parketi á gólfi og fallegum fataskápum með rennihurðum.
Þvottaherbergi: Þvottaherbergið er innan íbúðar með hvítri innréttingu með vaski og flísum á gólfi.
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign sem er skráð 6,2 fm. einnig er sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign.
Við sérmerkt bílastæði er hleðslustöð sem nýr eigandi getur tekið við.
þetta er virkilega björt og falleg íbúð í góðu lyftuhúsi með fallegu útsýni yfir Heiðmörkina og að Bláfjöllum.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir, löggiltur fasteignasali gsm 692-3344 eða hronn@fasteignaland.is.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér og í s.692-3344.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.