Brautarholt 6, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 67 daga á skrá

Verð 33,9
Stærð 39
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 876
Skráð 17.8.2017
Fjarlægt 23.10.2017
Byggingarár 1958
mbl.is

Fasteignasalan Miðbær kynnir til sölu glæsileg fullbúinn  útsýnisíbúð  á fjórðu og efstu hæð við Brautarholt 6 í Reykjavík. Um er að ræða 2ja herbergja íbúð nr. 406 sem er 38,7m2 og henni fylgja norðusvalir. Húsið er staðsett í grónu hverfi á frábærum stað þar sem blandað er saman íbúðum og þjónustu. Bílastæði eru sameiginleg á lóð hússins. Í nánasta umhverfi má finna flesta þá þjónustu sem fólk þarf á að halda og ekki nema fimm mínútna gangur niður á Hlemmtorg.
Allar nánari upplýsingar veita;
Ingólfur Ingvarsson lgf sími 8937806 eða ingolfur@midbaer.is
Sigfús Aðalsteinsson lgf sími 8989979 eða sigfus@midaer.is

Nánari lýsing:
Húsið sem er 4 hæða lyftuhús með 7 íbúðum á efstu hæðinni. Á fyrstu þremur hæðum er skrifstofur og þjónusta. Frágangur íbúða er einstaklega glæsilegur, fullbúnar með öllum gólfefnum  Slökkvitæki, reykskynjari og læsanlegur lyfjaskápur fylgir hverri íbúð.
Eignin skiptist í:
Stofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi.  Geymsluskápur í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi á hæðinni. Hjólageymsla er staðsett í porti bakvið húsið.

Lýsing:
Stofa og eldhús er eitt stórt bjart rými með útsýni til norðurs og norðursvalir. Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Frá stofu er gengið inn í svefnherbergi  með stórum fataskáp frá Parka.
Opið og rúmgott eldhús með fallegri innréttingu, keramikhelluborði með 4 hellum, blásturofn með hitamæli, vifta með kolasíu, stálvaski og blöndunartækjum. Eldhúsinnréttingar eru Schmidt frá Parka og eldhústæki frá AEG. Gert er ráð fyrir innbyggðri uppþvottavél í innréttingu
Baðherbergi eru flísalögt. Góð innrétting. Salerni er vegghengt. Sturta með glerskilrúmi. Blöndunartæki á baði eru hitastýrð með sturtuhaus og handúðara. 
 
Innréttingar og gólfefni frá Parka.
Hurðar frá Birgisson.
Arkitektateikningar eru  frá Tark arkitektum. 
Burðarþols- og allar lagnateikningar frá Ferli verkfræðistofu.
Rafmagnsteikningar koma frá Verkís.
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25