Verð | 134,9 |
Stærð | 145 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 931 |
Skráð | 7.3.2024 |
Fjarlægt | 12.4.2024 |
Byggingarár | 2018 |
mbl.is |
Miklaborg kynnir: Glæsilega þakíbúð með stórbrotnu útsýni . Einstök staðsetning í suð-vestur enda hverfisins, þar sem nýtur kvöldsólar og sólarlagið er magnað. 47,5 fm þaksvalir til suður og vestur auk 6,3 fm austursvala. Stórir gluggafletir á þrjá vegu. Sérmerkt stæði í bílageymslu. Tvennar stórar stofur, tvö svefnherbergi, gott baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Aukin lofthæð og glæsilegt eikar parket.. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s;773-6000 og thorunn@miklaborg.is
Komið er í anddyri með góðum skápum, það opnast inn í glæsilegt mjög bjart 41,8 fm alrými sem telur eldhús með eldurnareyju, borðstofu og aðra af tveimur stofum þakíbúðarinnar. Stórir gluggafletir eru eftir allri vesturhliðinni og útsýni stórbrotið til sjávar og fjalla. Úr alrýminu er gengið út á þaksvalirnar sem ná eftir allri vesturhliðinni og suðurfyrir þannig að sólar nýtur til sólarlags.
Eldhúsið er glæsilegt með góðu skápaplássi og kvartssteini í borðum. Innbyggð uppþvottavél frá Miele fylgir og vandaður innbyggður ísskápur frá Liebherr. Allar innréttingar og skápar eru dökkar og glæsilegar frá ítalska framleiðandanum Cubo Design, nema þvottahúsinnréttingar. Span helluborð og blástursofn er frá Miele. Alrýmið rennur saman við aðra glæsilega bjarta 32,7 fm stofu í suðurhluta íbúðarinnar. Þaðan er útgengt á austur svalir þar sem sólin skín á morgnana. Næst er svefnherbergisgangur, þar sem fremst er þvottahús með ræstivaski veglegri innréttingu frá Fríform Næst er baðherbergi með fallegri innréttingu, með kvartssteini í borðum og rúmgóðu sturturými. Barnaherbergið er 9,3 fm með góðum skápum og hjónaherbergið er rúmgott eða 16,2 fm með miklum skápum eftir heilum vegg. Baðherbergi og þvottahús eru flísalögð en á öllum öðrum rýmum er glæsilegt eikarparket frá Parka.
Fyrir öllum gluggum eru rafdrifnar snjallgardínur sem má stjórna með símanum eða fjarstýringu, einnig er mynddyrasímakerfi og Danfoss forritanlegir ofnahitastillar fyrir snjallsíma. 8,9 fm sér geymsla í kjallara er inni í birtu flatarmáli.Sérmerkt stæði í bílageymslu r, en þar er búið að setja upp grunnkerfi fyrir rafbílahleðslu. 201 Smári er sérlega vel staðsett hverfi í miðpunkti höfuðborgarsvæðisins þar sem stutt er í stofnbrautir og örstutt í fjölbreytta verslun og þjónustu í Smáralind og stutt er í leik og grunnskóla, íþróttaaðstöðu og heilsugæslu. Sérstaklega falleg og björt þakíbúð með mögnuðu útsýni á þessum vinsæla stað. Allar frekari upplýsingar veitir: Þórunn Pálsdóttir lögg. fasteignasali s:773-6000 eða thorunn@miklaborg.is