Djúpahraun 21, 805

Verð Tilboð
Stærð 113
Tegund Sumarhús
Verð per fm
Skráð 23.4.2024
Fjarlægt
Byggingarár 2022
mbl.is 1254747

Til sölu Djúpahraun 21, 113,3 fm nýtt fjögurra herbergja, mjög bjart og sólríkt sumarhús (Frístundarhús) í landi Miðengis í Grímsnesi. Húsið er vandað og traustbyggt álklætt timburhús, grundað á steyptum sökkli og steyptri botnplötu og liggur á 7400 fm eignarlóð. Húsið er enn í byggingu, en það verður afhent fullfrágengið. Við hækkandi byggingastig hækkar fasteignamat eignarinnar.
Stór og rúmgóð 100 fm verönd með heitum potti umlykur suður og vesturhlið hússins þar sem hægt er að njóta sólar frá morgni til kvölds.
Mjög fallegur og vel staðsettur bústaður þar sem stutt er í golf, gönguferðir og aðra útivist. Sannkölluð paradís fyrir fjölskylduna. Myndir eru úr öðrum sumarbústað sem er nákvæmlega eins.

Fáðu frítt verðmat fyrir þína eign


Allir gluggar og hurðir eru Ál-tré. Á þaki er tvöfalt lag af ásoðnum tjörudúk. Innveggir eru klæddir með OSB plötum og gifsi. Loft í alrými er panelklætt. Húsið er allt hvítmálað að innan og með 60x60 cm ljós/ljósgráum flísum á öllum gólfum.

Lýsing á Húsinu:
Gengið er inní rúmgóðan anddyrisgang með fataskáp. Úr anddyri er gengið inn í eitt af þremur herbergjum og inn annað af tveimur baðherbergjum, ásamt því að gengið er inn í stórt og bjart alrýmið.
Þrjú svefnherbergi eru í bústaðnum, fataskápar í þeim minni og fataherbergi með úttengi út á viðarpall úr hjónaherbergi.
Tvö baðherbergi eru í húsinu, sér baðherbergi úr hjónaherberginu og hitt er stærra gestabaðherbergi/þvottahús í anddyri með útgengi út á viðarpall.
Hvít innrétting með skúffuskáp er stærra baðherberginu. Spegill með lýsingu fyrir ofan innréttingu. Í báðum baðherbergjum er rúmgóð sturta með halla í gólfi sem liggur að niðurfalli. Gólf eru flísalögð og veggir sem snúa að sturtu eru flísalagðir. Einnar handar blöndunartæki eru á baðherbergjum.
Eldhúsið er opið með góðri eyju sem skilur eldhúsið frá stofu, í eyju eru allir neðriskápar með útdraganlegum skúffu, borðplata yfir eyju stendur út stofumegin þannig að hægt er að sitja á barstólum við eyju. Eldhúsinnrétting er með neðriskápum og plássi fyrir innbyggða uppþvottavél og fyrir innbyggðan ísskáp, allir skápar eru skúffuskápar með útdraganlegum skúffum. Innréttingar í eldhúsi eru hvítar. Spanhelluborð er í eyju og stór og góður vaskur er í innréttingu. Einnar handar blöndartæki eru í eldhúsi. Ljósar granít borðplötur eru í eldhúsi og á eyju.
Í eldhúsi er mjög góð lofthæð, stórir gluggar og bjart rými. Gólf eru flísalögð
Stofan er í sama rými og eldhúsið, stórir gluggar á öllum hliðum sem opna þetta bjarta rými, útgengt á rúmgóðan viðarpallinn til suðurs. Gengið er inní geymslu og lagnarými frá viðarpallinum.
Bústaðurinn er upphitaður með gólfhita. Öll lokuð rými eru loftræst.

Í öllum svefnrýmum eru topphengdir gluggar sem nýtast sem björgunarop 60x120 cm.
Húsið er hannað og teiknað af Verkfræðistofu Hauks Ásgeirssonar. Lokað hlið með símaaðgengi er fyrir hverfið.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á sem er 0.3% af endanlegu brunabótarmati.

Allar nánari upplýsingar um eignina veita Einar Örn Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-4969 eða á netfanginu einar@trausti.is og Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28