Álalækur 17, 800
Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá
Verð |
56,9
|
Stærð |
97
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
585
|
Skráð |
2.4.2024 |
Fjarlægt |
12.4.2024 |
Byggingarár |
2018 |
mbl.is |
|
Glæsileg 4ra herbergja íbúð á 2.hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu. Innbyggt bæði ísskápur og uppþvottavél sem fylgir með. Suðurvestursvalir sem eru með samþykki fyrir svalalokun og fallegt útsýni. Falleg eign á vinsælum stað á Selfossi. Íbúðin er laus við kaupsamning, bókið skoðun.Eignin er með 3 svefnherbergjum, stofu, baðherbergi, þvottahús og sérgeymslu á jarðhæð.
Nánari lýsing:Anddyri með innbyggðum fataskáp og parket á gólfi.
Stofan er rúmgóð með parket á gólfi og útgengt út á 18 fm svalir sem snúa í suðvesturátt.
Eldhúsið er opið inn í stofu með hvítir innréttingu frá GKS. Ísskápur og uppþvottavél fylgja. Parket á gólfi.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum fataskáp og parket á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergið er fallegt með upphengt klósett, handklæðaofn, sturtuklefi og flísum í hólf og gólf.
Þvottahús er innan íbúðar, með vaski og flísum á gólfi.
Á jarðhæð er sérgeymsla sem er 5 m² og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Hiti er í stétt að ruslaskýli. 2 rafhleðslustöðvar fyrir 4 hleðslur eru í eigu húsfélags og í þjónustu Ísorku.Húsið er klætt að utan með fallegri ál- og tréklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald á húsinu.Nánari upplýsingar veitir Inga Reynis löggiltur fasteignasali í síma 820-1903 eða á netfanginu inga@gimli.is