Jöfursbás 7c, 112
Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá
Verð |
77,9
|
Stærð |
92
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
850
|
Skráð |
15.4.2024 |
Fjarlægt |
17.4.2024 |
Byggingarár |
2023 |
mbl.is |
|
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir nýja 91,7 m2 íbúð sem er laus við kaupsamning við Jöfursbás 7C, Reykjavík .Íbúð 0103 er 3.herbergja íbúð á 1.hæð . Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 83 m2 auk 8,7m2 (geymslu merkt 0010) í kjallara ásamt bílastæði í lokuðum bílakjallara merkt B038. Íbúðin er skemmtilega hönnuð með gólfhita í allri íbúðinni. Sérafnotaflötur til suðurs út frá stofu. Íbúðin er með aukinni lofthæð yfir 280cm.Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit. Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum. Parket og flísar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.Nánari lýsing.Forstofa með innbyggðum fataskáp
Eldhúsið er opið inn í stofu með vandaðri innréttingu frá VOKE sem nær til lofts. Innrétting er vönduð með granit borðplötu.
Stofan er með góðum glugga og útgengt á sérafnotaflöt íbúðar.
Baðherbergið er flísalagt 60x60 ljósgráum flísum frá Epson bæði gólf og veggir, með vandaðri innréttingu með granitborðplötu. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum skápum sem ná til lofts.
Svefnherbergi (2) er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts
Geymslan er á sér geymslugangi í kjallara hússins
Hjóla-og vagnageymsla í kjallara
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar
Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is