Gullsmári 9, 201
Fjarlægð/Seld - Eignin var 2 daga á skrá
Verð |
40,0
|
Stærð |
97
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
412
|
Skráð |
4.5.2016 |
Fjarlægt |
6.5.2016 |
Byggingarár |
1996 |
mbl.is |
|
Fasteignasala Reykjavíkur kynnir í einkasölu: falleg 97fm 2ja til 3ja herbergja þjónustuíbúð á 11. hæð í lyftublokk fyrir 60+ við Gullsmára Kópavogi.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 97fm þar af er íbúðarrými 72,3 fm og bílageymsla merkt 09 0128 er 24,7fm.
Eignin skiptist í: hol, stofu, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi/þvottahús og sér geymslu í kjallara ásamt bílageymslu.
Lýsing: Komið er inn í forstofu með góðum eikar skápum.
Eldhús og stofa eru í einu opnu rými með útgengi á yfirbyggðar svalir.
Eikarparket er á öllum gólfum nema baðherbergi.
Baðherbergi/þvottahús með sturtu og dúkur á gólfi, flísar í sturtu.
Sérgeymsla er í kjallara.
Frábær staðsetning.
Innangengt er í félagsmiðstöð eldri borgara þar er hægt að setjast niður í notalegu umhverfi yfir kaffibolla og meðlæti, lesa dagblöðin, horfa á sjónvarp og eða ræða mál líðandi stundar.
Hádegisverður er framreiddur frá kl. 11.40 – 12.20 virka daga. Hádegisverð þarf að panta fyrir kl. 10:00.
Eignin er 2ja herbergja en er teiknuð sem 3ja herbergja.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasala Reykjavíkur því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Allar frekari upplýsingar og bókanir í skoðun veitir:
Hörður Björnsson í síma 660 8002 eða hordur@fr.is
Sylvía G Walthersdóttir löggildur fasteignasali s: 477-7771
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum.
(Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.000 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.
EF ÞÚ ERT Í SÖLUHUGLEIÐINGUM ER ÞÉR VELKOMIÐ AÐ HAFA SAMBAND OG FÁ FRÍTT OG SKULDBINDINGALAUST SÖLUVERÐMAT Á ÞÍNA EIGN