Verð | 99,0 |
Stærð | 177 |
Tegund | RaðPar |
Verð per fm | 560 |
Skráð | 10.3.2024 |
Fjarlægt | 22.3.2024 |
Byggingarár | 1979 |
mbl.is |
Miklaborg kynnir: Hálsasel 17, raðhús á tveimur hæðum í 109 Reykjavík. Eignin er skráð 176,9 m2 að stærð, þar af bílskúr 23,2 m2. Um er að ræða einstaklega vel skipulagt, fjölskylduvænt hús á góðum stað í Seljahverfinu.
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson í síma 6634392 eða kjartan@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa: með skápum, flísalagt gólf. Hellulögð stétt til suð-vesturs fyrir framan hús.
Gestasalerni: er innaf forstofu dúkur á gólfi og veggjum.
Þvottahús: með innréttingu, dúkur á gólfi
Hol/borðstofa: rúmgott hol sem tengir saman rými neðri hæðar, parket á gólfi. Stigi liggur frá holi sem liggur upp á efri hæð hússins.
Eldhús: með viðarinnréttingu og borðkrók, parket á gólfi..
Stofa og borðstofa er opnu rými, stúkað þó af að hluta til, parket er á gólfi og gluggar sem gefa góða birtu inn. Aðgengi er út frá stofu út á hellulagðan pall og þaðan út í garð.
Efri hæð:
Viðar stigi liggur upp á efri hæð.
Sjónvarpstofa: opin og björt, útgengt út rúmgóðar suðu-vestur svalir.
Hjónaherbergi: með skápum, parket á gólfi.
Herbergi: Þrjú herbergi á hæðinni, parket á gólfi.
Baðherbergi: dúkur á gólfi og veggjum, hvít innrétting, baðkar og sturtuklefi.
Geymsla: lítil geymsla með hillum.
Bílskúr: er 23,2fm að stærð. Ekki er innangengt en hurð er við hlið inngangs á neðri hæð. Hiti, rafmagn og vatn.
Húsið er vel staðsett í vinsælu og barnvænu hverfi. Stutt er í skóla, leikskóla og alla aðra þjónustu.