Andarhvarf 7a, 203
Fjarlægð/Seld - Eignin var 19 daga á skrá
Verð |
77,9
|
Stærð |
193
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
403
|
Skráð |
6.6.2020 |
Fjarlægt |
25.6.2020 |
Byggingarár |
2008 |
mbl.is |
|
LIND fasteignasala kynnir virkilega fallega, bjarta og rúmgóða 4. herbergja útsýnisíbúð auk bílskúrs að Andarhvarfi 7A í Hvörfunum í Kópavogi . Stórar hellulagðar svalir til norð- austurs ásamt hellulagðri verönd frá eldhúsi til suð-vesturs. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 164,8 m2 auk 28,4 m2 bílskúrs. Samtals 193 m2 .
Nánari lýsing.
Forstofan er rúmgóð með flísalögðu gólfi og eikarfataskáp.
Gestasnyrting er innaf forstofu með flísalögðu gólfi og hvítri innréttingu og spegli. opnanlegur gluggi og upphengt salerni.
Stofa-borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á stórar hellulagðar svalir með stórkostlegu útsýni.
Eldhúsið er opið inn í stofu með flísalögðu gólfi og plastaðri innréttingu með góðu skápaplássi, AEG ofn í vinnuhæð, innbyggður nýr örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél, keramik helluborði og viftuháf,. Gert er ráð fyrir ísskáp í innrétting. Útgengi út á hellulagðar svalir með stórkostlegu útsýni.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og eikarfataskáp.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og innbyggðum eikarfataskáp.
B
arnaherbergi með parketi á gólfi og eikarfataskáp.
Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og veggjum nánast upp í loft.,handklæðaofn, sturtuklefi og baðkar.Eikarinnrétting og upphengt salerni, opnanlegur gluggi.
Þvottahús með flísalögðu gólfi, borðplata með skolvaski.
Bílskúrinn er með sjálfvirkum hurðaopnara, stálvaskur og flísalögðu gólfi.
Geymsla með flísalögðu gólfi er innaf bílskúr.
Allar nánari upplýsingar veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is eða Stefán Jarl löggiltur fasteignasali í síma 892 9966 eða stefan@fastlind.is