Hverfisgata 33, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 90 daga á skrá
Verð |
Tilboð
|
Stærð |
466
|
Tegund |
Atv. |
Verð per fm |
|
Skráð |
7.10.2022 |
Fjarlægt |
6.1.2023 |
Byggingarár |
1965 |
mbl.is |
|
Heimili fasteignasala kynnir 465,6 fm Skrifstofu og þjónustuhúsnæði að Hverfisgötu 33. Einstakt tækifæri á svæði sem farið hefur í gegnum mikla endurnýjun. Auðvelt aðgengi er að eigninni og bílastæðahús handan götunnar. Um er að ræða 3ja hæða lyftuhús auk rýmis í kjallara.
Sérinngangur er að eigninni og 18 fm skrifstofurými á jarðhæð, auk salernisaðstöðu með aðgengi fyrir fatlaða.
Á 2. hæð eru tvær góðar skrifstofur, rúmt og bjart opið vinnurými og stórt fundarherbergi með glerhurðum og stórum gluggum. Einnig ljósritunaraðstaða, geymsla og eldtraust skjalageymsla. Þá er á hæðinni salerni og eldhús með nýlegri innréttingu. Steinteppi og parket á gólfum. Tölvulagnir í stokkum og kerfisloft á hæðinni.
Á 3. hæð hússins er rúmgóður og einknar hlýlegur salur, undir súð, með skemmtilega kvistgluggum og paraketi á gólfi. Snyrtingar og lítið eldhús eru á hæðinni. Lagnir og tengibox í gólfi. Suður svalir fyrir enda rýmisins. Hæðin hentar m.a. vel sem opið vinnurými, til námskeiðahalds, fyrir smærri eða stærri mótttökur o.fl. Auðveldlega má breyta skipulagi á öllum hæðum, þar sem aðeins eru léttir veggir.
Í kjallara eru tvær geymslur auk sameiginlegs rýmis.
Hverfisgatan hefur tekið á sig nýja mynd eftir mikla endurnýjun og uppbyggingu á seinustu misserum og árum.
Fágætt tækifæri fyrir fjölbreytta starfssemi í hjarta borgarinnar.
Nýtt fasteignamat er kr. 167.600.000
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, í síma 774 7373 ragnar@heimili.is