Skipholt 50, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 18 daga á skrá

Verð 117,9
Stærð 177
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 666
Skráð 19.11.2023
Fjarlægt 8.12.2023
Byggingarár 1958
mbl.is

Fasteignamiðlun og Hreiðar Levý lögg. fasteignasali kynna fallega, bjarta og vel hannaða, 5 herbergja hæð með sérinngangi og bílskúr í fallegu húsi á baklóð að Skipholti 50, 105 Reykjavík. Fallegt útsýni úr stofuglugga út í fallegt gróið og trjái vaxið svæði auk þess að kennileitisbyggingarnar Háaleitiskirkja og Stýrimannaskólinn blasa við út um stofugluggana. Eignin er skráð 176,9fm, þar af er bílskúrinn 32fm. Hæðin sjálf telur 133,2fm. Rishæðin er 65fm í gólffleti, en er alveg óskráð í fermetratölu eignar. Rishæðin er manngeng með 2m lofthæð í mæni, er í dag nýtt sem unglingaherbergi. Eignin skiptist í anddyri, stigagang, hol, 2 rúmgóðar stofur, eldhús með borðkrók, 3 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og gestasalerni, rishæð ásamt bílskúr. Sérbílastæði eignar er fyrir framan bílskúr. Mjög góð, vinsæl og fjölskylduvæn staðsetning í Holtunum í Reykjavík. 

Fasteignamat fyrir árið 2024 skv. HMS er 97.750.000kr.

Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý lögg. fasteignasala í síma 661-6021 eða hreidar@fasteignamidlun.is

Framkvæmdir síðustu ára:

Dren yfirfari 2007-08
Nýjar raflagnir 2005
Búið að draga vatn að bílskúr en á eftir að ganga frá tengingum
Þak endurnýjað ca 2003 -04 að mestu, og málað og yfirfarið held ég 2021
Búið að skipta um vatnslagnir að húsinu veit ekki hvenær. 
Múrviðgerðir og málað 2021 og gluggar yfirfarnir og málaðir á sama tíma
Tröppur brotnar upp og gert við 2021


Eignin Skipholt 50 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-2460, birt stærð 176.9 fm. Þvottahús merkt 010003 er skráð 8,7 fm, Anddyri með stiga merkt 010102 er skráð 4fm, íbúð á hæð merkt 010201 er skráð 133,2 fm og bílskúr merktur 020101 er skráður 32 fm. Rishæð er óskráð í fermetratölu eignar ca. 65fm gólflötur.

Nánari lýsing:
Anddyri: Gengið inn um sérinngang. Gengið upp stiga upp á íbúðarhæð. Einnig gengið niður í kjallara úr anddyri. Flísar á gólfi.
Gangur: Tengir saman eldhús, herbergi, gestasalerni og eitt svefnherbergjana.
Gestasalerni: Klósett, vaskur og spegill fyrir ofan vask.
Svefnherbergi I: Mjög rúmgott með góðum og fallegum skápum
Eldhús: Rúmgott með stórum borðkrók með upphengdum bólstrumum bekk. Falleg og mjög vel með farinn upprunaleg innrétting með efri og neðri skápum, steinn á eldhúsbekk. Gott skápa og vinnupláss. Aðstaða og tengi fyrir uppþvottavél. Opnanleg lúga inní borðstofu.
Borðstofa: Rúmgóð og björt með fallegri gluggasetningu til suðurs. Samliggjandi stofu. Útgengt út á góðar og sólríkar svalir til suðurs. Fallegt útsýni úr glugga út á gróið svæði, Háteigskirkju og Stýrimannaskólann.
Stofa: Rúmgóð og björt með stórum gluggum sem snúa til suðurs. Samliggjandi borðstofu.  Fallegt útsýni úr glugga út á gróið svæði, Háteigskirkju og Stýrimannaskólann.
Gangur: Tengir saman borðstofu, eldhús, 2 svefnherbergi og baðherbergi.
Baðherbergi: Baðkar með sturtu, upphengt klósett, vaskur með spegli fyrir ofan. Innbyggður skápur. Kominn tími á að uppfæra baðherbergi.
Svefnherbergi II: Rúmgott með góðum upprunalegum og fallegum skápum með rennihurðum.
Svefnherbergi III: Rúmgott með góðum upprunalegum og fallegum skápum með rennihurðum.
Rishæð: Gengið upp tröppur úr gangi uppí rishæð. Stórt opið rými. Ekki full lofthæð, 2m upp í mæni. Nýtist í dag sem unglingaherbergi. Ekki inni í birtri fermetratölu eignar.

Þvottahús: Sér þvottahús í kjallara. 8fm. Góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi í þvottahúsi.
Bílskúr: 32 fm með rafmagni. Sér bílastæði fyrir framan bílskúr.
Garður. Sameiginlegur garður bakvið hús til suðurs.

Falleg og vel skipulögð hæð í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Holtunum í 105 Reykjavík. Stutt í skóla á öllum stigum, miðbærinn í göngufæri og lágvöruverslun í nokkra metra fjarlægð. 

Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý Guðmundsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6616021, tölvupóstur hreidar@fasteignamidlun.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45