Garðastræti 40, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 14 daga á skrá

Verð 79,9
Stærð 147
Tegund Hæðir
Verð per fm 542
Skráð 11.4.2021
Fjarlægt 25.4.2021
Byggingarár 1935
mbl.is

 

Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu hæð (merkt 01-01) í reisulegu húsi á frábærum stað í 101 Reykjavík. Eignin er skráð 147,3 fm að stærð, þar af íbúðarrými 133,6 fm og geymslur 6,4fm og 7,6 fm, og telur þrjú til fjögur svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, tvær stofur og tvennar svalir. Húsið er teiknað af Einari Sveinssyni og Sigm. Halldórssyni og eru tvær hæðir og kjallari. ATH! Möguleiki fyrir áhugasama á að kaupa allt húsið. 

***Áhugasamir geta bókað tíma í skoðun hjá brynjolfur@heimili.is***
***Grímu- og hanskaskylda við skoðun***


Nánari lýsing:
Sameiginlegur inngangur í snyrtilega sameign þar sem er dúkur á gólfi og frá sameign er gengið inn í forstofugang eignar. Svefnherbergi eignar eru í dag þrjú og eru tvö þeirra með skápum innan rýma, á gólfum er parket. Mögulegt er að bæta fjórða herberginu við þar sem búningaklefi er skv. samþykktri teikningu. Baðherbergi er með  flísum á gólfi, ágætri innréttingu og sturtuklefa. Frá baðherbergi er einnig útgengt á aðrar svalir eignar. Opið er á milli borð- og setustofu sem báðar eru rúmgóðar og bjartar. Í setustofu eru gluggar á tvo vegu og jafnframt útgengt á hinar svalir eignar og þaðan niður á ágæta timburverönd.  Eldhús er með dúk á gólfi, ágætri innréttingu, borðkróki. Frá eldhúsi er útgengt á bak við hús sem og niður í kjallara/sameign um sameiginlegan stigagang. Í kjallara eignar eru sérgeymslur íbúðar sem og sameiginlegt þvottahús. 

Einstakt tækifæri á að eignast eign með mikla möguleika á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s: 896-2953, brynjolfur@heimili.is 

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33