Skipholt 17, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá
Verð |
46,0
|
Stærð |
135
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
341
|
Skráð |
7.3.2016 |
Fjarlægt |
15.3.2016 |
Byggingarár |
1968 |
mbl.is |
|
Eignamiðlun kynnir:
Góð 135 fm enda íbúð á tveimur hæðum (efstu) með sérinngang af svölum við Skipholt 17 í Reykjavík. Íbúð 301. Tvö svefnherbergi og tvær stofur. Fallegt útsýni frá inndregnum svölum efri hæðar til suðurs. Neðri hæð skiptist í forstofu, snyrtingu, eldhús og stofu. Efri hæð skiptist í tvö svefnherbergi, þar af eitt stórt, stofu og baðherbergi. Stórar suður svalir. Íbúðin er í leigu og selst með réttindum og skyldum leigusala.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er íbúð neðri hæðar skráð 60,2 fm, íbúð efri hæðar 65,9 fm og sér geymsla á hæðinni skráð 8,7 fm. Samtals 134,8 fm.
Íbúðin hefur verið standsett á síðustu árum. Gengið er inn um sérinngang inn á flísalagða forstofu með fatahengi. Inn af forstofu er flísalögð snyrting. Stofan er parketlögð með góðum gluggum til suðurs. Eldhúsið er opið yfir í stofu með eikarinnréttingu og glugga. Á efri hæð er komið upp á parketlagað stofu/sjónvarpsstofu. Þaðan er gengið út á 15 fm inndregnar svalir.Svefnherbergin eru tvö með parketi á gólfum og fataskápum. Hjónaherbergið eru mun stærra með litlu fataherbergi. Baðherbergið á hæðinni er flísalagt með baðkari og tengi fyrir þvottavél.
Seljandi eignaðist fasteignina í skuldaskilum og hefur aldrei haft starfsemi eða afnot af eigninni. Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á að sérstakrar árvekni sé gætt við skoðun og úttekt á eigninni og veitir seljandi eða fasteignasali allan nauðsynlegan aðgang til þess. Eignin selst í því ástandi sem hún er við skoðun.
Utan opnunartíma gefur Hilmar Þór Hafsteinsson löggiltur fasteignasali upplýsingar s. 824-9098 eða hilmar@eignamidlun.is.
Upplýsingar á skrifstofu Eignamiðlunar í síma 588-9090 eða á netfanginu eignamidlun@eignamidlun.is.
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 alla virka daga