Brókarstígur 9, 311

Fjarlægð/Seld - Eignin var 104 daga á skrá

Verð 44,9
Stærð
Tegund Sumarhús
Verð per fm
Skráð 27.1.2023
Fjarlægt 12.5.2023
Byggingarár
mbl.is

Brókarstígur 9, 311 Borgarnes (Brókarvatn).

Um er að ræða nýbyggt sumarhús, 2022, í skipulagðri sumarhúsabyggð að Selborgum við Brókarvatn. Húsið stendur á 3.211 fm leigulóð og skiptist það í forstofu, tvö svefnherbergi, svefnloft, baðherbergi, þvottahús með salerni ásamt alrými með eldhúsi/borðstofu/stofu. Sólpallur er á þrjá vegu við húsið og á honum er rafmagnspottur ásamt saunatunnu. Birt stærð húss verður um 92,2 fm. 

Húsið afhendist fullbúið með öllu innbúi og tækjum sem sýnt er við skoðun hússins.

Neysluvatn er úr varmadælu og húsið er kynnt með nútíma rafmagnsofnum. Eignin er á lokuðu sumarhúsasvæði og er þar símahlið til að komast inn á svæðið. 

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit strax!

Nánar um eignina:

Komið er inn í andyri og þaðan er fallegur tréstigi með handriði upp á rúmgott svefnloftið sem er með góðum glugga með flóttaleið. Á svefnherbergisgangi er þvottahús sem útbúið er með gestasalerni, vask í skápaeiningu, spegli, handklæðaofni ásamt þvottavél og þurrkara, vinylflísar á gólfi. Hjónaherbergið er útbúið með tvíbreiðu rúmi, viðar rúmgafli, hillum og fataskáp. Seinna herbergið á jarðhæð er einnig með tvíbreiðu rúmi, rúmgafli og kommóðu. Baðherbergið er einkar smekklegt, vínylflísar á gólfi, baðplötum á veggjum, baðkari, upphengdu klósetti, vaski á skápaeiningu og sturtuklefa. Gluggi er á baðherbergi með opnanlegu fagi. Samverurýmið er mjög bjart, gluggar á þrjá vegu, svalahurð út á pall, hækkuð lofthæð og rúmast stofa/borðstofa og eldhús vel á þessu svæði. Stofan er útbúin með sjónvarpi, skenk, sófaborðum, sófa og tveimur stólum. Borstofan er með stóru fallegu viðarborði og sex stólum. Eldhúsið er með rúmgóðri L innréttingu, efri og neðri hirslum, góðu vinnurými á bekk og vaski. Innbyggður ískápur, uppþvottavél, helluborð og bakaraofn fylgir allt með húsinu. Úti við inngang hússins er góð geymsla þar sem allar stofnlagnir koma inn, rafmagn og vatn. Stór rafmagns heitapottur er við inngang hússins ásamt saunatunnu. Lóðin er gróin birkitrjám, gott bílastæði er við húsið og aðkoman öll hin snyrtilegasta. Húsið er með harðparketi á öllum gólfum utan víniyflísa sem eru á votrýmum.

Sumarhúsafélagið Selborgir er með árgjald upp á 12.000 kr á ári og er einnig vatnsgjald fyrir kaldavatnsnotkun 20.000 kr á ári.


Brókarvatn er um 10 km frá Borgarnesi þar sem alla þjónustu má fá, matvöru- og aðrar verslanir, lögregla, slökkvilið og sjúkrahús ásamt allri íþróttaaðstöðu, sundlaug og golfvöllur.

Eiginleikar: Leiguland, Innbú fylgir, Heitur pottur, Svefnloft, Útsýni yfir vatn, Veiði, Gufubað, Timburhús.

Upplýsingar gefur: 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali sími: 899-0720, netfang: hrannar@fastlind.is


 
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21