Eiðar 0, 701
Fjarlægð/Seld - Eignin var 70 daga á skrá
Verð |
Tilboð
|
Stærð |
7.686.707
|
Tegund |
Lóð/Jarðir |
Verð per fm |
|
Skráð |
18.6.2021 |
Fjarlægt |
27.8.2021 |
Byggingarár |
|
mbl.is |
|
INNI fasteignasala s. 580 7905 - inni@inni.is
Til sölu er jörðin Eiðar, Fljótsdalshéraði ásamt öllum þeim byggingum er tilheyra jörðinni. Eiðar er falleg jörð á láglendi með nokkuð fjölbreyttu landslagi, skógi og vötnum. Eiðar eru c.a. 12 km frá þéttbýlinu á Egilsstöðum.
Heildarstærð jarðarinnar er samkvæmt Þjóðskrá Íslands 733 hektarar. Jörðinni tilheyra fasteignir sem samtals eru 4,707 m².Meðal bygginga er tilheyra Eiðum eru:
- fyrrum skólahús er hýsti Alþýðuskólann á Eiðum, þar er bæði íþróttahús og sundlaug. Einnig eru í húsinu yfir 20 svefnherbergi sem og íbúð, kennslustofur og samkomusalur.
- Þar við hliðina er stórt hús með mörgum herbergjum á þremur hæðum, fyrrum heimavist skólans. Þar er afar rúmgott eldhús og matsalur. Þrjár íbúðir eru í viðbyggingu við húsið.
- Gistihús er rekið í enn öðru húsi, þar eru 20 herbergi til útleigu. Í viðbyggingu er þokkalega rúmgóð íbúð á tveimur hæðum.
- Einnig er á staðnum tveggja hæða hús með tveimur íbúðum á efri hæð, önnur er tveggja herbergja en hin fimm herbergja og rúmgóð. Á neðri hæð hússins er lítil stúdíó-íbúð ásamt geymslum en á neðri hæð er ekki full lofthæð.
- Tvö einbýlishús tilheyra jörðinni. Endurbætur hafa staðið yfir á öðru húsinu en eru ekki langt komnar. Hitt húsið er í afar slæmu ástandi eftir vatnstjón.
Ástand fasteigna á er tilheyra Eiðum er afar mismunandi og er því skorað á áhugasama aðila að skoða eignirnar vel með það í huga.
TILBOÐ ÓSKAST Í EIGNINA!