Verð | 85,0 |
Stærð | 94 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 908 |
Skráð | 24.1.2024 |
Fjarlægt | 2.2.2024 |
Byggingarár | 1996 |
mbl.is |
Miklaborg og Jón Rafn fasteignasali kynna: Þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í góðu lyftuhúsi með stæði í bílastæðahúsi. Húsvörður starfar fyrir húsfélagið. Góð aðkoma og fallegt útsýni. Íbúðin er laus fljótlega.
Skipulag: Anddyri, hol, stofa / borðstofa, eldhús/svalaskýli, baðherbergi, tvö svefnherbergi, geymsla innan íbúðar og sérgeymsla í sameign, stæði í bílastæðahúsi með rafhleðslustöð.
Sameiginleg líkamsræktaraðstaða og púttvöllur er á lóð hússins. Íbúðin er miðsvæðis og stutt er í alla þjónustu. Hægt er að setja upp þvottavél inná baði en í boði er einnig sameiginlegt þvottahús í sameign.
Nánar:
Samkvæmt Þjóðskrá er eignin skráð 01-203, íbúð 93,6 m2 Stæði í bílageymslu merkt 04-0101.
Anddyri: Flísar á gólfi, góður skápur fyrir yfirhafnir.
Stofa/borðstofa: Með parket á gólfi
Eldhús: Rúmgott eldhús með flísum á gólfi, vönduð innrétting með góðum efri og neðri skápum, ljós borðplata og flísar á vegg milli efri og neðri hluta innréttingar. Innfeld lýsing í lofti, keramik helluborð, vifta og ofn. Rýmið hefur verið stækkað frá teikningu með opnun yfir svalaskýli, stórir gluggar með fallegu útsýni.
Svefnherbergi 1: Parket á gólfi, stór skápur.
Svefnherbergi 2: Parket á gólfi
Baðherbergi: Flísalagt hólf í gólf, upphengt salerni með innbyggðum kassa, sturta, vönduð innrétting með góðum efri og neðri skápum, stór spegill með lýsingu fyrir ofan, handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél.
Geymsla 1: Geymsla innan íbúðar með hvítri innréttingu, aðstaða fyrir þurrkara.
Geymsla 2: Merkt 009, 6,2 m2.
Stæði í lokaðri bílageymslu: Merkt 04-0101
Annað: Sameign hússins er vel um gengin og snyrtileg, húsvarðaríbúð í sameign er í útleigu og skilar húsfélaginu tekjum sem og rými sem leigt er út til snyrtistofu. Sameiginleg líkamsræktar aðstaða og púttvöllur á lóð hússins. Sameiginlegt þvottahús í kjallara sameignar þar sem hver og ein íbúð getur verið með sínar eigin vélar.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is