Bárugata 4, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá

Verð 319,0
Stærð 114
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 2.793
Skráð 6.4.2022
Fjarlægt 15.4.2022
Byggingarár 1925
mbl.is

Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali sími 845 7445, netfang gudrun@fasteignasalan.is, og Fasteignasalan Bær kynna í einkasölu stórglæsilegt mikið endurnýjað hús í miðbæ Reykjavíkur.  Í húsinu eru 3 samþykktar íbúðir auk rislofts.  Bílskúrsréttur og atvinnustarfsemi möguleg.  Gróðurhús í garði og timburverönd.

Heildar fasteignin Bárugata 4, Reykjavík, samtals skráðir fermetrar 313,5 skráð sameign allra íbúðanna þriggja samtals 45fm auk óskráðra fermetra í risi, samtals 49,4fm.  Samtals telur húsið því 407,9fm.  Eignin stendur á 433,2fm eignarlóð.  Sérinngangur fyrir hverja íbúð.


F 2001821.  Íbúð á 1. hæð:
Gengið er inn í forstofu inn í opið eldhús við stofu með spanhelluborði og bakarofni.  Tvö rúmgóð herbergi eru á hæðinni.  Baðherbergi uppgert og flísalagt, með upphengdu salerni, sturtu, vaskinnréttingu og handklæðaofni.   Endurnýjaðar vatnslagnir að hluta og raflagnir sem og annars staðar í húsinu.  Ofnakynding er á hæðinni með endurnýjuðum lokum.
Upprunalegir gluggar og gler eru á hæðinni.

Gólf:  Gólfin eru flotuð með epoxymálningu .  Flísar á baðherbergi og forstofu.


F2001822.  Íbúð á 2. hæð:
Á hæðinni eru 4 rúmgóð herbergi og eru lagnir fyrir eldhús í einu þeirra.  Glerhurð er á milli stofu og herbergis sem gæti nýst sem borðstofa, stofa og baðherbergi.  Baðherbergið er endurnýjað með baðkari, sturtu, upphengdu salerni og vaskinnréttingu auk tengis fyrir þvottavél.
Gluggar og gler á göflum til austurs og vesturs hafa verið endurnýjaðir.

Gólfefni:  Upprunalegar gólffjalir að frátöldu einu herberginu þar sem skipt hefur verið um fjalir.  Flísar á baðherbergi.

Fellistigi er af hæðinni upp í ris, sem hefur verið einangrað og klætt auk þess sem gólf hefur verið endurnýjað.

Ris:  Heildarfermetrafjöldi í risi er 71,4fm og þar af 22fm samþykktir og eru því gólffermetrar 49,4fm þar sem lofthæð nær ekki 1,80m.


F 2001820.  Íbúð á jarðhæð/kjallara:
Forstofa, Tvö rúmgóð herbergi, opið eldhús með eldhúsinnréttingu við stofu  Stórt baðherbergi, með sturtu, upphengdu salerni og vaski auk góðrar þvottaðstöðu.  Auka salerni er á hæðinni.  Geymsla undir stiga.
Allir gluggar og rúður hafa verið endurnýjaðar á hæðinni.  
Gólfhiti að hluta á móti ofnakyndingu.

Gólfefni:  Gólf flotuð og epoxymáluð.  Flísasr á salerni, forstofu og baðherbergi/þvottahúsi.


Ris:  Heildarfermetra fjöldi er 71,4fm þar af samþykktir 22.  Fermetrar undir 1,80m samtals 49,7

Árið 2013 var óskað eftir samþykki fyrir að byggja bílskúr samhliða að sá eldri var rifinn, sem var samþykkt auk þess sem ákveðin atvinnustarfsemi má vera í húsinu.  Nýr eigandi sem hyggur á slíkt þarf þó að endurnýja leyfin æski hann þess.

Viðhald:
Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.  Skólplagnir hafa verið endurnýjaðar  og brunnur settur að auki á lóð Bárugötumegin til að taka við yfirfalli.  Grindverk í kringum hús endursteypt og málað.
Rafmagn hefur verið endurnýjað í húsinu, þ.m.t.töflur og tenglar.
Þakrennur endurnýjaðar fyrir nokkrum árum og þak málað. 
Tröppur á bakvið hús endursteyptar.
Hluti af hurðum gerðar upp og aðrar endurnýjaðar.
Mynddyrasími á 1. og 2. hæð.
Gluggar í risi hafa verið endurnýjaðir.

Allar upplýsingar veitir Guðrún Hulda Ólafsdóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 845 7445 eða á netfanginu gudrun@fasteignasalan.is
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45
Mynd 46