Húnabraut 11, 540

Fjarlægð/Seld - Eignin var 13 daga á skrá

Verð 19,5
Stærð 82
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 237
Skráð 1.4.2021
Fjarlægt 14.4.2021
Byggingarár 1967
mbl.is

Fasteignasalan Domus á Blönduósi kynnir 3ja herbergja, 82,3 m2 íbúð á fyrstu hæð í Húnabraut 11 á Blönduósi. Húsið er byggt árið 1967 úr steinsteypu. Góð staðsetning, stutt í alla þjónustu svo sem verslun, skóla, sundlaug og íþróttahús.

Eignin skiptist í anddyri, eldhús, gang, stofu og tvö svefnherbergi ásamt baðherbergi. Parket er á stofu, herbergjum, gangi og hluta eldhúss, en flísar á gólfi meðfram innréttingu. Baðherbergi er með sturtu, flísalagt í hólf og gólf.
Skápar eru á gangi og í stærra svefnherberginu.

Nýtt gler er í gluggum og rafmagn endurnýjað fyrir 5-10 árum síðan, á svipuðum tíma var farið í steypuviðgerðir utanhúss og þak endurnýjað.

Eignin hlýtur sitt eigið fastnúmer með nýrri eignaskiptayfirlýsingu fyrrihluta árs 2021. Tölur um fasteigna- og brunabótamat í söluyfirirliti eru því áætlaðar af fasteignasala, sem og fasteignagjöld.

Upplýsingar veita Stefán Haraldsson s 440 6030 eða 894 1669 stefan@domus.is  eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 440 7972 stefano@pacta.is

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12