Hverfisgata 94, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá
Verð |
52,9
|
Stærð |
87
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
610
|
Skráð |
8.5.2019 |
Fjarlægt |
9.5.2019 |
Byggingarár |
2018 |
mbl.is |
|
RE/MAX Senter kynnir: Nýjar og glæsilegar íbúðir á Barónstíg 6 og Hverfisgötu 94 - 96, 101 Reykjavík.
Íbúð merkt 0201. *Sýningaríbúð* Vönduð og vel skipulögð tveggja herbergja 86,7 fm endaíbúð ásamt stæði í bílageymslu í glæsilegri nýbyggingu á besta stað í miðborg Reykjavíkur, stutt í alla helstu þjónustu.
Eldhús er opið með sérsmíðuðum innréttingum upp að lofti, öll tæki eru frá viðurkenndum aðila. Stofa er stór og björt með útgengt út á 6,5 fm svalir og 9,3 fm verönd til vesturs. Rúmgott svefnherbergi er með sérsmíðuðum fataskápum. Baðherbergi með vönduðum tækjum, sérsmíðuðum innréttingum og þvottaaðstöðu. Í bílakjallara er sér 8,7 fm geymsla ásamt bílastæði sem fylgir.
Þessi íbúð er sýningaríbúð og afhendist með gólfefnum og kvarts stein á eldhúsvegg.
Anddyri er flísalagt (hálkufríar) með uppsettum mynddyrasíma, póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Stigar og stigapallar eru teppalagðir.
Innkeyrsla að bílgeymslu verður sameiginleg með Hverfisgötu 92.
Myndir eru teknar í sýningaríbúð 0201 og sýna efnisval og frágang. Í húsinu eru 38 íbúðir á 2.-5. hæð – tveggja til fimm herbergja. Stærðir eru frá 59 – 186 fermetrar. ???????Íbúðirnar verða afhendar fullbúnar án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar á gólfum. Íbúðir eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi. Á fyrstu hæð eru verslunar- og veitingarrými.
Mikið hefur verið lagt upp úr hönnun hússins, jafnt að utan sem innan. Húsið er einangrað og klætt að utan með viðhaldslitlum og fallegum efnum. Byggingin er U-laga og rammar inn sameiginlegan skjólgóðan suður garð. Sjá skilalýsingu og nánari upplýsingar á
https://hverfis.is
Nánari upplýsingar veita Guðrún Lilja Tryggvadóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í sima 867-1231 / gudrunlilja@remax.is, Gunnar Sverrir Harðarson lögg.fast. 862-2001 gunnar@remax.is og Ástþór Reynir lögg. fast. í síma 899-6753 arg@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75
þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 mvsk.