Mýrargata 26, 101
Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá
Verð |
69,9
|
Stærð |
66
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
1.059
|
Skráð |
11.4.2024 |
Fjarlægt |
19.4.2024 |
Byggingarár |
2014 |
mbl.is |
|
Borg fasteignasala kynnir bjarta tveggja herbergja 66 fm endaíbúð á 1. hæð við Mýrargötu 26 í 101 Reykjavík. Sérmerkt stæði í bílakjallara fylgir eigninni.
Sérafnotaréttur er við inngang á sameign, aðgengi að tvennum sameiginlegum þaksvölum með einstaklega fallegt útsýni yfir hafnarsvæðið og slippinn. Íbúðin er skráð 66 fm skv. Þjóðskrá, þar af 7,2 fm geymsla í kjallara. Rúmóðar svalir út frá stofu. Hiti í gólfi, gólfsíðir gluggar og svalir með glerhandriði sem bjóða upp á gott útsýni. Stæði í bílageymslu fylgir eigninni. Allir eigendur hússins hafa aðgang að stórum og veglegum þaksvölum á 7. og 8. hæð. Af svölunum er einstakt sjávarútsýni og útsýni yfir Reykjavík. Í húsinu er húsvörður. Stutt er í alla þá þjónustu sem miðbærinn hefur upp á að bjóða.
Eignin skiptist í: Forstofu, gang, svefnherbergi, baðherbergi, samliggjandi eldhús og borðstofu/stofu.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í flísalagða forstofu. Frá forstofu er komið inn á gang með góðu skápaplássi, á hægri hönd er rúmgott svefnherbergi með stórum fataskáp. Eldhús og stofa/borðstofa eru samliggjandi í björtu opnu rými. Eldhús er nýuppgert með fallegri hvítri innréttingu með tvöföldum postulínsvaski og blöndunartækjum frá Lusso. Eldhúseyjan er einstaklega falleg úr ítölskum marmara og er helluborð á eyjunni. Mjög gott skápa- og geymslupláss er í eldhúsi. Stórir gólfsíðir gluggar eru í stofu og stór rennihurð út á góðar svalir. Baðherbergi er nýuppgert með marmaraflísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu og blöndunartækjum frá Lusso.
Frábær staðsetning rétt við miðbæinn og stutt alla helstu þjónustu.
Fjórir inngangar eru í húsið, falleg miðja í húsinu með opnu þaki skapar einstaka umgjörð fyrir íbúa hússins og íbúðir á jarðhæð hafa góðan sérafnotareit í miðjunni við inngang sinna íbúða. Allar nánari upplýsingar veita:
Úlfar Þór Davíðsson, löggiltur fasteignasali í síma 788 9030, ulfar@fastborg.is