Rauðalækur 16, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 5 daga á skrá

Verð 61,9
Stærð 87
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 710
Skráð 4.3.2023
Fjarlægt 10.3.2023
Byggingarár 1960
mbl.is

Eignamiðlun kynnir:

Góð eign í þessu vinsæla hverfi í Laugardalnum. Sérinngangur. Leikvöllur rétt aftan við hús. Sameiginlegur garður. Íbúðin er 87,2 fm - 3ja herbergja við Rauðalæk 16.
Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, stóra stofu, nýlegt eldhús, anddyri og litla geymslu. Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.

Nánari lýsing:
Komið inní rúmgott anddyri, innaf því er geymsla á vinstri hönd.
Eldhús með hvítum flísum og eldhúsinnréttingu (2012) og ný rafmagnstafla fyrir eldhús sett á sama tíma.
Stór og falleg stofa með nýlegum gluggum, plastparket á gólfi. Hol sem hægt er að nota fyrir skrifstofu sem er með góðum fataskápum.
Tvö svefnherbergi, og annað þeirra er lítið og hitt mjög rúmgott. 
Baðherbergi flísalagt með baðkari og sturtuhaus. Gluggi er á baðherbergi.
Sameiginlegt þvottahús á hæðinni. Snyrtileg sameign. Fallegur sameiginlegur garður.

Húsið var steinað í kringum 1998 eða 18 árum, og þakið lagað í kringum 2009/2010 og þá var um leið drenað í kringum húsið. Skipt var um glugga á norðaustur hlíð hússins árið 2019. Skólplagnir endurnýjaðar 2019. Allir gluggar málaðir að utan árið 2022.

Eignin er frábærlega staðsett en göngufæri er í leik- og grunnskóla, sundlaug og líkamsrækt. Kaffihús og útivistarsvæði Laugardalsins.

Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, s:867-0968 eða unnar@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21