Seljaland 18, 806
Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá
Verð |
29,9
|
Stærð |
82
|
Tegund |
Sumarhús |
Verð per fm |
366
|
Skráð |
23.8.2023 |
Fjarlægt |
1.9.2023 |
Byggingarár |
1982 |
mbl.is |
|
Opið hús sunnudaginn 27. ágúst milli kl. 15:00 & 16:00 við Seljaland 18 í landi Lækjarhvamms í Bláskógabyggð - Vinsamlegast boðið komu ykkar til Arons lgfs.: aron@as.is
3ja herbergja sumarhús ásamt gestahúsi og geymsluskúr á stórglæsilegri eignarlóð á fallegum stað í landi Lækjarhvamms við Laugarvatn í Bláskógabyggð. Húsið skiptist í stofu og opið eldhús með innréttingu og eldavél með bakaraofni, parket á gólfum.
Tvö svefnherbergi með fataskáp í báðum, parket á gólfum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og sturtuklefa.
Búrskápur þar sem hitakútur er vistaður.
Góður pallur er á þrjá vegu um húsið, þar er
heitur nuddpottur, viðbygging með þvottahúsi og grillskýli.
Þvottavél, þurrkari, 40 l. frystikista og ný uppþvottavél fylgja.
Gólfefni í húsinu eru parket frá Birgisson og flísar á baðherbergi og anddyri.
Gólf var endureinangrað þegar parketið var lagt að sögn seljanda.
Parketlagt gestahús fylgir, þar er hiti og rafmagn og gluggar með opnanlegum fögum.
Auk þess er geymsla (verkstæði) í sama húsi með rafmagni.
Þvottahús er flísalagt. Þá er einnig nýbyggður sérstæður geymsluskúr á lóð, með rafmagni.
Lóðin er 4.380 fm eignarlóð. Í húsinu er vatn og rafmagn og eru hús og pottur rafmagnskynt.
2021 var ný 2.600 lítra rotþró sett niður og suður- og austurhluti lóðar drenaður um leið.
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is