Krókahraun 4, 220
Fjarlægð/Seld - Eignin var 13 daga á skrá
Verð |
39,5
|
Stærð |
139
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
285
|
Skráð |
6.10.2016 |
Fjarlægt |
19.10.2016 |
Byggingarár |
1966 |
mbl.is |
|
RE/MAX Fjörður kynnir bjarta og fallega 4ra herbergja íbúð á annarri hæð í fjórbýli við Krókahraun 4 í Hafnarfirði. Íbúðin er skráð 106,6 fm og bílskúr 32 fm. Samtals: 138,6 fm.
Nánari lýsing: Komið er inn í anddyri/hol með parketi á gólfi og góðum skápum. Rúmgott og bjart hjónaherbergi með góðu skápaplássi, dúkur á gólfi. Tvö barnaherbergi með dúki á gólfum. Bjart eldhús með góðri innréttingu, efri og neðri skápar, keramik helluborð og ofn, dúkur á gólfi. Björt stofa/borðstofa með parketi á gólfum og er gengið út á rúmgóðar svalir. Baðherbergi með flísum á gólfi, góður sturtuklefi, ásamt góðri baðinnréttingu. Þvottahús er innan íbúðar með góðri innréttingu. Geymsla er innan íbúðar. Góður bílskúr með heitu og köldu vatni og rafmagni, hurðaopnari og gönguhurð á hlið bílskúrs fylgir eigninni.
Þetta er vel staðsett eign á þessum vinsæla stað. Stutt er í alla þjónustu, verslun, grunnskóla, leikskóla og fleira.
Allar nánari upplýsingar gefur Víglundur Helgason í síma 891-9981, email: viglundur@remax.is eða Páll Guðmundsson lögg. fasteignasali í síma 519-5900 eða pallb@remax.is.
1. Stimpilgjald af kaupsamning - 0.8 % af heildarfasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldarbréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - almennt 1.0 % af höfuðstóli skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.