Skarphéðinsgata 20, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 40 daga á skrá

Verð 36,9
Stærð 71
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 522
Skráð 17.12.2020
Fjarlægt 26.1.2021
Byggingarár 1942
mbl.is

Fasteignamiðlun Grafarvogs kynnir 3. herbergja miðhæð í þríbýli við Skarphéðinsgötu 20 í Reykjavík  Eignin er samkvæmt þjóðskrá 70,7 fm. Íbúðin 65,5 fm og geymsla 5,2 fm. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö herbergi og baðherbergi. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og sér geymsla. Sameiginlegur inngangur er með efstu hæð hússins.

Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun.


Nánari lýsing
Forstofa er rúmgóð með fatahengi og flísum á gólfi.
Eldhús er með eldri innréttingu, harðparket á gólfi.
Stofa er björt, harðparket á gólfi.
Herbergin eru rúmgóð, skápur er í öðru herberginu, harðparket á gólfum. Úr svefnherbergi hjóna er gengt út á suður/austur svalir.
Baðherbergi er lítið með baðkari og lítilli innréttingu við vask, flísar eru á gólfi.
Sameiginlegt þvottahús og sér geymsla eru í kjallara hússins.
Pípulagnir eru endurnýjaðar og ofnar yfirfarnir, einnig er rafmagn yfirfarið að hluta.Steypuviðgerðir voru gerðar fyrir tveimur árum og þakkantur endursteyptur.

Eignin er vel staðsett miðsvæðis í Reykjavík og steinsnar frá hringiðu mannlífsins í miðbænum. Stutt er í alla þjónustu svo sem verslanir, skóla og heilsugæslu, einnig söfn, leikhús,veitingastaði og fl. 

Hafið samband við Árna á arni@fmg.is og í síma 898-3459 eða Stellu á stella@fmg.is og í síma 824-0610 til að bóka skoðun.

Vegna mikillar sölu vantar Fasteignamiðlun Grafarvogs eignir af öllum stærðum og gerðum til sölu, ekki hika við að hafa samband og fáið sölumat ykkur að kostnaðarlausu.

Þeir sem leita að eignum í Grafarvogi og Grafarholti leita til okkar á Fasteignamiðlun Grafarvogs, sími 575-8585. Ekki hika við að hafa samband og fáðu sölumat þér að kostnaðarlausu. Við erum staðsett í Spönginni, við hliðina á Bónus.
https://www.facebook.com/fmg.is/
www.fmg.is



 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10