Verð | 33,5 |
Stærð | 84 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 399 |
Skráð | 12.7.2016 |
Fjarlægt | 18.7.2016 |
Byggingarár | 1993 |
mbl.is |
SÖLUSÝNING FIMMTUDAGINN 14.JÚLÍ 17-17.30
LIND Fasteignasala kynnir: Rúmgóð þriggja herbergja íbúð með timburverönd í fallegu húsi við Lautasmára 35. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Birt stærð skv Þjóðskrá eru 83,9 fm. auk geymslu í sameign sem er ekki tiltekin í fasteignaskrá. Fasteignamat fyrir 2017 er kr.29.450.000.-
Íbúðin skiptist í rúmgóða forstofu með skápum uppí loft, hol, stofu, eldhús og borðkrók, þvottahús innaf eldhúsi, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Útgengt er úr stofu á afgirta 23 fm timburverönd sem snýr til suðurs.
Dúkur er á gólfi í allri íbúðinni fyrir utan baðherbergi og þvottahús sem eru flísalögð.
Sameign er sérlega snyrtileg og er nýlega máluð. Húsið var múrviðgert og málað árið 2010.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði og alla helstu þjónustu.
**Nánari upplýsingar veitir Stefán Jarl, Löggiltur leigumiðl./Sölufulltrúi s:892-9966 eða stefan@fastlind.is**
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar ef um nýja lántöku er um að ræða - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.