Hverfisgata 33, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 29 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 466
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 11.7.2019
Fjarlægt 9.8.2019
Byggingarár 1965
mbl.is

Trausti fasteignasala kynnir:  Hverfisgata 33, 101 Reykjavík
Einstaklega bjart skrifstofu- og atvinnuhúsnæði með sérinngangi og lyftu sem auðvelt er að aðlaga að reksti. Eignin er á þremur hæðum auk kjallara, alls 465,6 fm að stærð. Þar sem hluti af rishæð er undir súð er hún stærri en uppgefnir fermetrar. Húsið er steinsteypt og var klætt 1998 með loftræstri álklæðningu. Bílastæðahús er handan götunnar með nægum bílastæðum og því er gott aðgengi að eigninni. Húsið stendur á skilgreindu miðborgarsvæði M1C, sem er svæði með takmarkaðar miðborgarheimildir og götusvæði 17. Í gildi er deiliskipulag fyrir Skúlagötusvæði sem var staðfest árið 1986. Um er að ræða 62,37% eignarhluta í húsinu. 

Nánari lýsing:
Jarðhæð: Gengið er inn um sérinngang. Þar er eitt herbergi með gluggum í tvær áttir og salerni með aðgengi fyrir hreyfihamlaða.
2. hæð: Hæðin er í dag innréttuð sem skrifstofa en býður upp á ýmis tækifæri. Miðrýmið er opið og mjög bjart. Þar er eldhús með nýlegri hvítri innréttingu og tengi fyrir uppþvottavél. Rúmgott fundarherbergi með gluggum í tvær áttir. Tvær rúmgóðar skrifstofur eru innréttaðar innst á hæðinni, önnur með glugga í tvær áttir og hin með einum. Einnig er á hæðinni salerni og tvær geymslur, önnur eldvarin. Svart steinteppi og eikarparket er á gólfi. Kerfisloft með hljóðeinangrun.
3. hæð: Hæðin er að hluta undir súð með kvistgluggum sem voru settir 1998. Stór salur með viðarparketi. Geymslurými með rennihurðum er meðfram einni hlið. Innbyggður glerskápur milli kvistglugga. Góðar flísalagðar suðursvalir götumegin. Eldhúsaðstaða er í öðru rými með viðarinnréttingu ásamt fundarborði. Svart steinteppi á gólfi. Tvö salerni með flísum á gólfi. Á ganginum er fatahengi, skápur með stálvaski og lítið seturými. 
Kjallari: Tvær læstar rúmgóðar geymslur án glugga, sameiginlegt lagnarými, ruslakompa og vörumóttaka.

Bókaðu skoðun og pantaðu söluyfirlit  með því að smella hér eða hafðu samband við Guðbjörgu Helgu í síma 897 7712.

MYNDBAND AF UTANVERÐU HÚSINU smelltu hér.

Hverfisgatan er spennandi valkostur þar sem mikil uppbygging á sér stað þar þessi misserin. Þarna eru nágrannar eins og danska sendiráðið, Þjóðleikhúsið, ráðuneyti, Hæstiréttur ásamt fjölda verslana og þjónustuaðila. 

Smelltu hér fyrir frítt söluverðmat án skuldbindingar á þinni fasteign.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir 
löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur 
s. 897 7712
Netfang: gudbjorghelga@trausti.is


Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45
Mynd 46
Mynd 47
Mynd 48
Mynd 49
Mynd 50
Mynd 51
Mynd 52
Mynd 53