HEIÐARBRÚN 43B, 810

Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá

Verð 122,9
Stærð 219
Tegund Einbýli
Verð per fm 560
Skráð 25.5.2022
Fjarlægt 3.6.2022
Byggingarár 2021
mbl.is

Byr fasteignasala kynnir í einkasölu HEIÐARBRÚN 43 B, Hveragerði. Nýtt sex til sjö herbergja einbýlishús með bílskúr í grónu hverfi í Hveragerði.
Húsið skiptist í íbúð 194,2m² og 25,2m² bílskúr samtals 219,4m² samkvæmt skráningu Þjóðskár Ísland.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, fimm svefnherbergi, þrjú baðherbergi, sjónvarpsstofa, gangur, þvottahús og bílskúr/geymsla. 
Gott skipulag fyrir stóra fjölskyldu. Möguleiki er á að skipta húsinu upp í tvær íbúðir.
Fasteignamat hússins á byggingarstigi 7, matsstigi 7 verður kr. 80.250.000.-

Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp, þaðan er innangengt í bílskúr, í eldhús og herbergjagang.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er frá stofuhluta alrýmis út á timburverönd til austurs og suðurs, u.þ.b. 12m² af veröndinni til suðurs er aflokað með skjólveggjum.
Eldhús er rúmgott með eyju. Gorenje spanhelluborð, tveir ofnar í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél. Samsung ísskápur getur fylgt. 
Fimm svefnherbergi eru í eigninni samkvæmt upprunalegu skipulagi, sjá teikningu. Eitt svefnherbergjanna er nú opið við alrými í stofu/borðstofu.
Hjónaherbergi með baðherbergi inn af, rúmgóður fataskápur. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, sturta, vegghengt salerni og handklæðaofn.
Þrjú önnur svefnherbergi eru í eigninni.
Baðherbergi með þvottaaðstöðu er á gangi gengt hjónaherbergi, flísalagt í hólf og gólf. Vaskinnrétting með speglaskáp, vegghengt salerni, sturta og handklæðaofn.
Baðherbergi á gangi gengt sjónvarpsstofu, flísalagt í hólf og gólf. Vaskinnrétting, sturta, vegghengt salerni og handklæðaofn, einnig er tengimöguleiki er fyrir þvottavél.
Sjónvarpsstofa, með lítilli eldhúsinnréttingu, stálvaskur og Gorenje eldavél. Útgengt er frá sjónvarpsstofu út á timburverönd til suðurs u.þ.b. 12 m² að stærð með skjólveggjum.
Gangur liggur endilangt eftir húsinu, í enda gangsins til vesturs er útgengt, getur verið auka innangur ef vill.
Bílskúr/geymsla með millilofti, innangengt er frá anddyri hússins, einnig er útgengt um gönguhurð til hliðar við aðalinngang hússins. 

Gólfefni, flæðandi harðparket er á anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, svefnherbergjum, sjónvarpsstofu og gangi. Flísar eru á baðherbergjum, þvottahús og bílskúr/geymsla. 
Gólfhiti er í allri eigninni, einnig í bílskúr. Hljóðvistarplötur eru í lofti alrýmis og sjónvarpsstofu. Innbyggð lýsing.

Húsið er staðsteypt, kvarsað að utan með ljósum lit, framhluti hússins er með sjónsteypuáferð. Þak er með aluzink bárujárni. 

Mjög góð staðsetning austarlega í grónu hverfi í Hveragerði, stutt í leikskólann Undraland, grunnskólann og alla almenna þjónustu.  Ýtið hér fyrir staðsetningu. 


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteign.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteign.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteign.is
Atli Geir Sverrisson, aðstoðarmaður fasteignasala / í námi til löggildingar - atligeir@byrfasteign.is

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24