Völuteigur 31, 270

Fjarlægð/Seld - Eignin var 154 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 1.965
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 16.5.2019
Fjarlægt 17.10.2019
Byggingarár 1985
mbl.is

Miklaborg kynnir: Atvinnuhúsnæði við Völuteig 31 í Mosfellsbæ til sölu eða leigu. Húsið er 1.965 fm og stendur á stórri afgirtri og malbikaðri lóð. Frábær staðsetning á höfuðborgarsvæðinu. Stór verksmiðjusalur með mikilli lofthæð og góðu aðgengi um innkeyrsluhurðir en einnig er skrifstofu og starfmsannaaðstaða í húsinu. Möguleiki er fyrir réttan aðila að leigja húsð.

Um er að ræða atvinnuhúsnæði, samtals 1.965 fm. Húsið stendur á afgirtri og malbikaðri lóð sem er sameiginleg með Völuteig 31A, samtals 15.048 fm.

Völuteigur 31 (fastanúmer 208-4546) - 1.965 fm Límtréshús á steyptum grunni byggt árið 1985. Húsið skiptist í 1492 fm verksmiðjusal með góðri lofthæð, 378 fm skrifstofu / starfsmannaaðstöðu og 95 fm ketilhús með tveimur iðnaðarhurðum sem getur nýst sem sjálfstætt iðanaðar eða geymslubil. Öflugar brunavarnir eru í húsinu með brunaúðunarkerfi. Fasteignamat 2019 er kr. 308.450.000 og brunabótamat kr. 339.800.000.

Lóð og athafnasvæði er malbikað og upphitað, samtals 15.048 fm að stærð. Rúmgott athafnasvæði er við húsið, vel girt með vinnugirðingum og rafstýrðu stálhliði. Stór hluti girðingar vestan megin við húsið er 5 metra há ógagnsæ girðing úr timburverki og veitir því gott skjól fyrir veðri og vindum. Bílastæði eru að austanverðu meðfram Völuteigi 31 og 31A og norðan megin við Völuteig 31. Nýtingarhlutfall er í dag um 0,31 sem er nokkru lægra en nýtingarhlutfall nærliggjandi lóða.

 

Nánari upplýsingar veita: 
Ásgrímur Ásmundsson hdl. og löggiltur fasteignasali, sími 865-4120 eða asi@miklaborg.is
Þröstur Þórhallsson löggiltur fasteignasali, sími 897-0634 eða throstur@miklaborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4