Holtsvegur 25, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 35 daga á skrá

Verð 52,9
Stærð 76
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 692
Skráð 26.3.2021
Fjarlægt 30.4.2021
Byggingarár 2014
mbl.is

Höfði fasteignasala kynnir:

Laus við kaupsamning - Mikið útsýni - Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð í lyftuhúsi við Holtsveg í Urriðaholti í Garðabæ, frábært útsýni, m.a. yfir Urriðavatn.

Lýsing: Gengið er inn af flísalögðum svölum inn í flísalagða forstofu með góðum skápum, frá forstofu er gengið inn í  stórt alrými sem samanstendur af eldhúsi og stofu, frá rýminu öllu er mikið og fallegt útsýni. Eldhúsið er með fallegri háglans hvítri innréttingu, AEG ofn og helluborð, ísskápur og uppþvottavél fylgja. Frá stofu er gengt út á stórar svalir til suðurs með miklu útsýni. Stórt hjónaherbergi með skápum, barnaherbergið minna án skápa. Gott flísalagt baðherbergi með upphengdu salerni, baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting við vask, skápur á vegg, afstúkað fyrir þvottavél og þurrkara. Sér geymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Á öllum gólfum eignarinnar, utan baðherbergis, er harðparket, á baðherbergisgólfi og veggjum eru flísar. ATH: Eigninni fylgir ekki stæði í bílastæðahúsi.

Sameign hússins er mjög snyrtileg, flísalögð að mestu en máluð gólf á geymslugangi og í hjóla- og vagnageymslu. Um er að ræða fallega og vel skipulagða eign sem vert er að skoða, stutt er í alla helstu þjónustu. 




Frekari upplýsingar veitir: 
Kristinn Tómasson Viðskiptafr. MBA
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali.
Gsm. 820-6797, 
kristinn@hofdi.is 




 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20