Lautasmári 49, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 23 daga á skrá

Verð 39,9
Stærð 84
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 476
Skráð 8.9.2017
Fjarlægt 1.10.2017
Byggingarár 1993
mbl.is

LIND fasteignasala kynnir bjarta og fallega þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð (efstu) í snyrtilegu fjölbýli við Lautasmára 49 í Kópavogi. Íbúðin er skráð 83,9 fm hjá Fasteignamati ríkisins. Sérgeymsla er í sameign sem er ekki inni í fermetrafjölda. Innbú getur fylgt með að frátöldum örfáum persónulegum munum. Stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.

Forstofa: Plastparket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: plastparket á gólfi, hvít innrétting. Nýlega var skipt um borðplötu, vask, eldavél og viftu. Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt með.
Stofa: Plastparket á gólfi. Útgengi á vestursvalir.
Hjónaherbergi: Plastparket á gólfi, fataskápur.
Barnaherbergi: Plastparket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Ljós baðinnrétting, gott skápapláss. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottahús er inn af eldhúsi. Skolvaskur og léttar hillur.

Sérgeymsla er í sameign. Geymslan er ekki inni í skráðum fermetrum íbúðar skv. Fasteignamati ríkisins.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Að auki er geymsluloft í þakrými sem íbúar hússins hafa nýtt sem auka geymslu.
Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Lára Þyri Eggertsdóttir, löggiltur fasteignasali/B.A. í lögfræði í síma 899-3335 eða lara@fastlind.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%.  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 54.900.- með vsk. 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29