Dalbraut 18, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá

Verð 28,1
Stærð 64
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 435
Skráð 30.9.2015
Fjarlægt 9.10.2015
Byggingarár 1987
mbl.is

*MIKIÐ ENDURNÝJUÐ OG FALLEG ÍBÚÐ FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI*

Eignatorg kynnir fallega 2ja herb., 64,5 fm. íbúð, á 2. hæð, í lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri, auk ca. 6,2 fm. geymslu í kjallara.  Yfirbyggðar suðursvalir með svalaparketi snúa út í gróðursælan garð.  Tvær geymslur.  Íbúðin getur verið laus fljótlega.  Sameiginleg setustofa er á hæðinni.  Snyrtileg sameign.  Boðið er upp á þjónustu á vegum félags- og þjónustumiðstöðvar Reykjavíkur.  Í tengihúsi á jarðhæð er hárgreiðslustofa, setustofa, mötuneyti með verönd, föndur- og spilaherbergi.  Fallegur garður og púttvöllur fyrir framan veröndina.  Frábær staðsetning, þar sem stutt er í Laugardalinn, laugina, verslun og þjónustu.

 

Allar nánari upplýsingar veitir: 

Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1819, eggert@eignatorg.is

Viltu frítt verðmat fyrir sölu?  Get ég aðstoðað þig við sölu eða leigu íbúðar þinnar?

 

Nánari lýsing:  Komið er inn í forstofu með fataskáp.  Á gangi/holi er innrétting með vinnuborði.  Stofa er með útgengt á yfirbyggðar suðursvalir með svalaparket á gólfi.  Eldhús með ljósri innréttingu, viftu og Electrolux eldavél.  Svefnherbergi er með stórum fataskáp.  Baðherbergi er með innréttingu, sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél, handklæðaofn, flísum á veggjum og dúk á gólfi.  Geymsluherbergi er í íbúð, með hillum.  Rúmgóð sérgeymsla er í kjallara.  Nýlegt og fallegt planka plastparket er á gólfum, nema á baðherbergi þar sem er dúkur.  Sameiginlegt þvottahús með þvottavél og þurrkara er í kjallara.  Lyfta er í húsinu og einnig húsvörður.  Sameign og lóð er vel viðhaldið.

Annað:  Íbúðin er á vegum samtaka aldraðra.  Kaupandi greiðir að auki 1% af kaupverði til Samtaka aldraðra og félagsgjald skv. gjaldskrá.  Þjónustuselið í húsinu á og rekur Reykjavíkurborg.

 

Eftirfarandi hefur m.a. verið endurnýjað frá árinu 2013:

Gólfefni:  Fallegt planka plastparket.

Svalagólf:  Svalaparket

Gluggar:  Þrír PVC gluggar á austurhlið.

Hurð:  Brunatefjandi hurð fram á gang.

Harmonikuhurð: Aðskilur forstofu og geymsluherbergi frá öðrum vistarverum.

Baðherbergi:  Sturtuklefi, flísar á veggjum, dúkur á gólfi, handklæðaofn, neðri skápur, borðplata, vaskur og blöndunartæki.

Eldhús:  Borðplata, höldur, vifta, hillur, blöndunartæki og vaskur.

Innrétting:  Á gangi/holi er innrétting með skápum og vinnuborði.

Rúllugardínur og kappar:  Í öllum gluggum.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari   upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39